Mímir - 01.06.1989, Page 6

Mímir - 01.06.1989, Page 6
óreiðu, gera sér grein fyrir veruleikanum sem við erum hluti af. Sú leið að skáldskap, er hér var nefnd, leiðir til þeirrar ályktunar að líta á skáldskap sem skilaboð til lesenda um sýnir skáldanna og þau sannindi um tilveruna sem þau telja sig hafa séð. Ég lít á það sem hlutverk allrar bókmennta- umræðu að freista þess að nema þessi skilaboð og túlka þau. Af þessu leiðir að ég skoða bókmenntaum- ræðuna sem þjón bókmenntanna en ekki herra. Hlutverk bókmenntaumræðu — rannsókna, kennslu, tímarita- og blaðagreina — hlýtur að vera það að gera okkur að betri lesendum, halda opnum og opna sem flestar móttöku- stöðvar við skilaboðum skáldanna en loka þeim ekki. Einkennist þá bókmenntaumræðan á okkar dögum af ákveðnu innihaldsleysi? Því verður naumast svarað með ákveðnu jái eða neii. Til er ágæt bók sem heitir Sjö tegundir marg- ræöni. Líklega væri hægt að semja þykka bók um sjö tegundir innihaldsleysis. Hér verður ekki einu sinni komið með tillögu að kaflaheit- um. Fyrst er á það að líta að ekki eiga allir þátt- takendur í bókmenntaumræðunni óskilið mál, og svo tekst hverjum og einum misvel upp. Sumt, sem menn segja, getur verið innihalds- ríkt og haft gildi þó að annað sé tómahljóðið einbert. Ættum við kannski að spyrja: Hvar felast hætturnar á innihaldsleysi? í sögu sinni finnst mér Guðmundur Andri hafa bent á tvennt: Þegar menn hafa glatað trúnni á allar fræði- kenningar sem hjálpartæki við að nema skila- boð skáldskapar er hætta á ferðum. Ekki felst minni hætta í oftrúnni á kenningar og kenningasmiði, jafnvel þótt hún birtist í mildara formi en forðum þegar vitnað var í æruverðugt nafn Olivers Lodges sem lokarök. Eitt, sem leiðir af kenningatrú, mætti e.t.v. kalla ofríki bókmenntafræðinnar. Menn taka að líta á bókmenntaumræðuna sem herra bók- menntanna en ekki þjón. Skáldverk eru fremur notuð til að þéna undir kenningu en kenningin til þess að opna sýn inn í heim skáldverksins. Við slíka meðferð getur rannsakandinn bein- línis lokað fyrir víð svið í heild verksins. Önnur tegund innihaldsleysis felst í því þegar á menn fellur það sem ég stundum kalla „her- fjötur fræðimennskunnar“. Menn sogast inn í hringiðu fræðihugtaka sinna, burt frá skáldskapnum, sem þeir þó ætl- uðu að túlka, og þeysa háspekilega gandreið um flest svið milli himins og jarðar önnur en viðfangsefnið þaðan sem upp var lagt. Þegar ég les slíkar herfjötursgreinar spyr ég stundum. Er það ekki rétt, þrátt fyrir allt, sem forðum var sagt: — Hið óljóst sagða er hið óljóst hugsaða? Þess háttar greinar fela í sér hættuna á að opna háskalega menningargjá í okkar litla sam- félagi. Hingað til höfum við talið það styrk okkar að tiltölulega mikill hluti sæmilega læsra og les- andi íslendinga nyti skáldskapar og tæki þátt í umræðu um bókmenntir. Þegar þessi lesandi hluti gefst upp við að nema umræðuna er eitt- hvað bogið í ríki Braga. Sú tegund innihaldsleysis, sem ég skal að lokum nefna, felst í því hirðuleysi, grunnfærni og flaustri er oft einkennir íslenska dagblaða- dóma um bækur, einkanlega í önnum jólakaup- tíðarinnar þegar meginhluti íslenskra bók- mennta kemur fyrir sjónir manna. Mál er að linni. Ungum lesendum Mímis kann að þykja sem hér birtist dæmigert svartagallsraus gamals manns. Betur að satt væri. Því vil ég endurtaka að ekki verður öll bók- menntaumræða „okkar daga“ sett undir einn hatt og unnt væri að benda á ýmislegt sem er betur gert og innihaldsríkara en á „annarra dögum“. Én hvernig eigum við að varast hættur inni- haldsleysis? Ég hygg að af öllum greinum mennskra fræða sé bókmenntafræðin ein hin huglægasta. I skilningi og skynjun á bókmenntum dugir rökhyggjan ein skammt. Til þurfa einnig að koma tilfinningalegt næmi og innsæi. Þegar við viljum nema skilaboð skáldskapar hljótum við að freista þess að samstilla vitsmunalega rök- hugsun við skynjun og tilfinningu. Fræðikenningar geta verið mikilsverð tæki við framkvæmd þessa ætlunarverks ef þeim er 6

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.