Mímir - 01.06.1989, Page 15

Mímir - 01.06.1989, Page 15
maður þessa tíma, segir hún, vissi ekkert hrylli- legra en að „hin góða kona“ (ímynd móðurinn- ar og sofandi kynþarfar) slyppi úr ánauð kynferðislegrar bælingar. Það er Dracula sem breytir konunum þeirra í kynferðisleg rándýr og einmitt þess vegna, segir Gail, eru hryllileg- ustu atriði sögunnar tengdar kynferði konunn- ar.15 A þessum tíma var hræðsla mannsins við dýr- ið í sér óvenju kraftmikil. Kom þar til gífurleg spenna hvað varðaði kynlífið, hræðslan við hið óskynsamlega og sömuleiðis eðlishvatirnar, en kenningar Darwins skutu mönnum skelk í bringu. Greinarhöfundur telur að vampíruismi tjái ekki síst hræðslu mannsins við dýrið innra með sér. En hvern telur Gail vera lykil sögunn- ar? Ræðu Dracula í Piccadilly en þar segir hann m.a.: Your girls that you all love are mine al- ready, and through them you and others shall yet be mine... I6. Hún segir ógnina vera tvíþætta, annars vegar ráðist Dracula á garðinn þar sem hann er lægst- ur: á kveneðlið eins og forfaðir hans gerði í Eden forðum daga og þá sem Viktoríanskur Satan. Sem fyrr er takmarkið að öðlast heildar- yfirráð. Hins vegar (og þá ógn telur Gail vera mikilvægari) getur hann sundrað „hinni sam- eiginlegu dulvitund karlmannsins“ með því að breyta „hinni góðu konu“ í kynferðislegt rán- dýr. Dracula sé því ekki einungis ósigrandi keppinautur kynferðislega, heldur einnig ómeðvituð rödd innra með hetjunum sem hvísl- ar því að stelpurnar þeirra, englarnir, séu hugs- anlegar vampírur, að innst inni séu þær í raun- inni hórur. En er víst að svo sé? V Dracula gefur sannarlega innsýn í margvís- lega kreppu Viktoríutímans, ekki síst þá kyn- ferðislegu. Þær Gail B. Griffin og Anne Cran- ny-Francis virðast takmarka túlkun sína við Viktoríutímann. En segjum svo að ógnin sem birtist í Dracula beinist að karlmanninum í líki konu sem orðin er frjáls kynvera, þá hljóta að vakna tvær spurningar: Hvers vegna er konan karlmanninum svona mikil ógn í líki líflegrar kynveru? Og í ljósi þess að hér er á ferðinni goðsögn um vampíru, gildir þessi hræðsla karl- mannsins þá ekki um alla tíma? Goðsögn felur í sér sannindi um manninn, hún dregur upp mynd af hræðslu hans og þrá frá ómunatíð, hún skolar þeim á land í mynd tákna og forboða. Dracula, eins og aðrar gotneskar sögur, sýnir ósk eða aigera andstæðu hennar verða að veruleika. Það er til marks um þróun gotneskra sagna — og kannski bókmenntanna almennt — að í Dracula sameinast óskin og andstæða hennar í einni og sömu „andhetj- unni“: Dracula er einn en heimurinn sem hann herjar á er klofinn. Auðvitað ætlar sér enginn að ofmeta þekk- ingu Stokers á (tímalausu) kyneðli manns- skepnunnar, því eins og fram hefur komið er hér um víðan völl að fara. Dracula gengur ekki einasta í sprungur kúgunar á kynlífssviðinu og Stoker sjálfur er tæplega laus úr viðjum sam- tíma síns. Bretland Viktoríutímans er ekki heldur nein Sódóma og gætu því afrek Dracula virst „glæsilegri“ en ella: kannski stuðlar þetta að ofuráherslu á kynferðislegt stef sögunnar. Samt sem áður má ætla Stoker næsta næma tilfinningu fyrir því gangvirki, burtséð frá hans eigin kynhegðan og hugmyndum um líflegar og lífvana kynverur. Stoker vissi ýmislegt um ímyndir karls og konu. Með tilkomu Dracula hriktir í stoðum karl- mennskuímyndar hinna. Veldi þeirra er fall- valt, eilífðareiginleikar eru skyndilega dregnir í efa og smæð þeirra kemur í ljós. Þeir eru sterk- ir, haldnir kynferðislegri getu sem enginn efast um svo lengi sem konan ruggar kynþörf sinni og getu í svefn — á meðan eiginleikar hennar eru ákvarðaðir karlmanninum í hag. Dracula vekur þrána og leiðir Lucy og Mínu inn í land forboð- ins unaðar. Þetta er sú ógn sem karlabandalaginu stafar af Dracula. Greifinn ræðst gegn þeim á þeirra eigin forsendum, ógnar þeirra viðkvæmustu sannfæringum. Sú „sameiginlega dulvitund" sem hann hótar að sundra, er sameiginleg dul- vitund þeirra um sjálfa sig ekki síður en kon- una/hóruna. Þegar á reynir, „dvínar karl- mennska Holmwoods allnokkuð“ og Harker umbreytist í gamlingja á einni nóttu.17 Alræði þeirra er ógnað með karlmennsku sem þeir geta ekki keppt við, árás Dracula er árás á forsendur óttans við hóruna. 15

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.