Tímarit lögfræðinga - 01.08.2024, Blaðsíða 95
241
Arnljótur Ástvaldsson
tilgangi jafngildir því ekki að öll slík félög njóti rétthæfis.
Viðurkenning á því að ákveðinn aðili sé bær um að eiga réttindi
og bera skyldur og vera aðildarhæfur fyrir dómi verður eftir sem
áður að grundvallast á þeim réttarreglum sem gilda hverju sinni.
Íslenski löggjafinn, sem og löggjafar á öðrum Norðurlöndum,
hefur t.d. gert þá kröfu að ef einstaklingar hyggjast stofna og
starfrækja félög án þess að bera ábyrgð á skuldbindingum félagsins (t.d.
í formi hlutafélags) þá verði að uppfylla ákveðnar kröfur fyrir
skráningu (t.d. um fjármögnun með greiðslu hlutafjár) og fylgja
ákveðnum reglum (t.d. að greiða ekki arð nema að uppfylltum
skilyrðum sem taka mið af fjárhagslegri afkomu félagsins). Að
sama skapi gerir íslenskur réttur þær kröfur að ef félagsmenn í
almennum félögum eigi að njóta verndar meginreglunnar um
takmarkaða ábyrgð, þá verði slíkt félag að hafa verið stofnað og
starfrækt í samræmi við óskráðar reglur félagaréttar, m.a. regluna
um að starfa í ófjárhagslegum tilgangi.
Ef gengið er út frá því að rétthæfi, í þessu tilviki rétthæfi
annarra aðila en einstaklinga (ópersónulegra aðila), verði að
byggjast á (skráðum eða óskráðum) réttarreglum íslensks
réttar,122 má spyrja hvort slíkri réttarreglu hafi verið slegið fastri
í H 9. nóvember 2022 (18/2022) (Körfuknattleiksdeild ÍR) og fylgt í
eftirfarandi dómaframkvæmd. Reglan væri þá svohljóðandi:
Deildir eða einingar innan rétthæfra félaga, sem ekki eru félög
sjálf, eru ekki rétthæf nema fyrir liggi að þau lúti, að meginstefnu,
ekki boðvaldi æðri stjórnareiningar innan hins rétthæfa félags
og njóti, að meginstefnu, fjárhagslegs sjálfstæðis frá félaginu.
Boðvald og fjárhagslegt sjálfstæði eru þannig skilyrði sem
uppfylla þarf til þess að beita undantekningunni frá þeirri
almennu reglu að deild teljist ekki rétthæfur aðili. Sá sem færir
122 Sjá hér til hliðsjónar rökstuðning Landsréttar í máli L 12. október
2023 (532/2023) (GX Holding Limited), þar sem aðildarhæfi félags var
hafnað sökum þess að gögn skorti um opinbera skráningu þess: „Um
aðildarhæfi ópersónulegra aðila er ljóst að það er fyrir hendi hjá félagi eða
stofnun ef lög eða aðrar réttarreglur heimila að slíkur ópersónulegur aðili geti
átt réttindi eða borið skyldur í samskiptum við aðra.“