Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.2024, Side 114

Tímarit lögfræðinga - 01.08.2024, Side 114
260 Frávik og skýringar á tilboðum hafi þeim verið heimilað að breyta hönnun götunnar. Það kom og fram hjá vitninu Tryggva Jónssyni, sem skoða verður sem starfsmann stefnanda við hönnunina, að hann gerði sér grein fyrir því að hann væri að breyta hönnun götunnar. Ekki kemur fram í útboðslýsingu að óskað sé frávikstilboða og stefnandi lýsti tilboði sínu ekki sem slíku. Síðastgreind mál varða nokkuð skýr frávik frá tæknilegum kröfum útboðsgagna þar sem bjóðendur leggja fram aðra lausn en fyrirskrifuð er í útboðsgögnum eða reyna að endurskilgreina þarfir kaupandans. Að mati höfundar er það því eðlileg niðurstaða að tilboðin séu metin ógild vegna þeirra frávika frá útboðsgögnum sem var í þeim að finna. Frávik í tilboðum geta þó verið annars eðlis og ekki vikið með eins skýrum hætti frá kröfum útboðsgagna. Kærunefnd útboðsmála hefur litið svo á að í tilboðum geti falist óheimil frávik þegar settir hafa verið fyrirvarar eða skilyrði við tilboð, sérstaklega hvað varðar verðbreytingar, hvort sem um er að ræða gengisbreytingar eða verðhækkanir hjá birgjum, sem ekki er gert ráð fyrir í útboðsgögnum. Um þetta segir eftirfarandi í úrskurði kærunefndar útboðsmála í máli nr. 7/2020: Af útboðsgögnum verður ráðið að bjóðendum í hinu kærða útboði hafi verið ætlað að meta umfang verkefnisins og gera fast verðtilboð sem næði yfir allan kostnað og gjöld vegna þjónustunnar. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á tilboðsfjárhæð nema ef nánar tilgreindar gengisbreytingar verða á samningstímanum og er það jafnframt háð samkomulagi aðila þar um, sbr. grein 1.4 í útboðsgögnum. Jafnvel þó vísað hafi verið til fastrar fjárhæðar á tilboðsblaði kæranda þá kemur fram í tilboði hans að um sé að ræða kostnaðarmat (e. fee estimate) sem sé byggt á tilteknum forsendum (e. assumptions). Þá kom fram að kostnaðarmat væri háð ákveðnum lykilbreytum (e. key variables), það er hversu ítarlega þyrfti að vinna verkefnið, hvernig aðgengi að gögnum og stjórnendum yrði háttað og gæðum gagna. Þá kom fram að ef umfang verkefnisins myndi aukast eða ef tímaáætlun yrði framlengd kæmi til endurskoðunar þóknunar með samþykki kaupanda. Nánara umfang væri háð samningaviðræðum og gerð skriflegs samnings. Með hliðsjón af þessu verður að miða við að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.