Skemmtisögur - 01.07.1949, Qupperneq 5

Skemmtisögur - 01.07.1949, Qupperneq 5
var óþrjótandi. Jim uppgötvaði, að auð- veldara væri að koma tíu venjulegum stúlk- um á framfæri, heldur en einni stúlku af tegund Önnu. Fyrsta reynslukvikmyndin, sem Anna lék í, var tekin að morgni dags, nokkru seinna. Hún kom niður af æfingasviðinu allmjög föl og tekin. Jim bauð henni til morgun- verðar. Hún gat ekki komið einum einasta bita niður, og augu hennar voru stór og tómleg. „Ég gat fundið lyktina af mínum eigin leik,“ sagði hún og kreisti annarri hendinni után um dúkhornið. „Hann verkaði á mig eins og dauf svæla af brenndu gúmmí, á heiðum haustdegi. Þetta eru þá endalokin." „Tja,“ sagði Jim. „Á ég að panta meira kaffi?" Hún liristi höfuðið. „Þegar ég horfðist í augu við mína eigin eyðileggingu og ósigur, þá starfaði heilinn alveg rólega og raun- hæft. Allt er nu fast ákveðið: Hnefafylli af svefnpillum, slangan af ryksugunni sett í samband við blásara bílsins, gluggarnir þéttlokaðir og hurðin á bílskúrnum — það tckur ekki langan tíma. Vertu sæll, Jim! Líði þér ætíð sem allra bezt! Ég vona að þú eignist betri stúlku, en ég hef verið þér.“ „Þú hefur ekki verið mín,“ sagði Jim. „Jú, á vissan hátt.“ „Fyrirgefðu," sagði Jim. „Mér þykir leitt að andmæla þér síðustu stundirnar, sem þú átt eftir á lífi, en sambandið okkar á milli hefur einungis verið af venjulegum viðskipta-rótum runnið." „Ég skal skilja kveðjubréf eftir til þín,“ sagði Anna, „sem mun gefa fólki ástæðu til þess að ætla, að ég hafi verið þín. Þú munt aldrei geta þurrkað út áhrif þess.“ „Ef þú heldur svona áfram, verður end- irinn sá, að ég set líka slöngu í samband við blásarann á bílnum mínum," sagði Jim. „Nú skaltu heklur ganga með mér niður að höfninni. Við tökum þar á móti beiti- SKEMMTISÖGUR skipi, sem er að koma heim af Kyrrahaf- inu.“ Niðri á hafnarbakkanum iðaði allt af ungum og fögrum stúlkum, og Jim varð að taka á öllu sínu, til þess að geta otað Önnu fram fyrir hinar. í því almenna uppnámi, sem þarna var, missti hann sjónar af henni, og þegar hann loks rakst á hana aftur, var hún komin með herfang í eftirdrag. Það var herðabreiður og kraftalegur sjóliðsfor- ingi. „Carlyle sjóliðsforingi — Jim Malvern," kynnti Anna. „Malvern er barnfóstran, sem kvikmyndafélagið hefur fengið til þess að gætá mín.“ „Það hlýtur að vera þægilegt starf," sagði Carlyle. „Mig langar í eitthvað að borða. Komið þér með, Malvern?" „Gjarnan," sagði Jim fljótmæltur. „Komdu, Anna!“ Þau óku af stað í stórum, svörtum bíl, sem einkennisklæddur bílstjóri stjórnaði,og var hann auðsjáanlegá glaður yfir að hús- bóndi hans var aftur kominn heim. í hin- um glæsilega veitingasal, þar sem þau snæddu, virtust allir viðstaddir þekkja Car- lyle. „Einn kokkteil til, ungfrú Barker?" „Nei, takk, drykkjuboltinn yðar,“ svaraði Anna. „Ef ég drykki meira, færi mér ef til vill að lítast betur á yður." „Ha, hvað?“ sagði Jim. „Þetta er undarlegur talsmáti af stúlku, sem rauk á mig af fyrrabragði," sagði Car- lyle og sneri sér að Jim. „Ég var upptekinn við að gæta ákaflega fallegrar stúlku, svo og sjálfs mín, þegar hún hérna vatt sér að mér og sagði að sokkabandið sitt — eða hvað það nú var — hefði slitnað." „Anna Barker!" sagði Jim.“ „Ég var frávita," sagði Anna. „Allar hinar stúlkurnar voru umltringdar karlmönnum, en ég var sjálf alein! Þessvegna vatt ég mér að þessum aulabárði!" 3

x

Skemmtisögur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.