Skemmtisögur - 01.07.1949, Page 6

Skemmtisögur - 01.07.1949, Page 6
„Nú-já, þá er ég orðinn aulabárður!" sagði Carlyle. Þegar þau yfirgáfu veitingasalinn, var Anna skyndilega orðin vingjarnlegheitin sjálf. „Þetta hefur verið ljómandi kvöld,“ sagði hún brosandi. „Ef ég hef sagt eitt- hvað óviðurkvæmilegt, þá er það eingöngu af því, að þér eruð óuppdreginn bjálfi, sem ekki verðskuldar betra. Drottinn blessi yð- ur, Hðsforingi!" „Halló, ef þér ætlið niður í borgina, vilj- ið þér þá ekki vera með?“ sagði Carlyle. „Og þér líka, Malvern?" „Nei, þakka fyrir gott boð,“ sagði Jim og gekk leiðar sinnar. HANN HRINGDI margoft til Önnu um kvöldið, en það var ekki fyrr en um tólfleyt- ið, sem hann náði sambandi við hana. Gæti hann fengið að líta inn til hennar, svona í fimm mínútur? „Gjörðu svo vel,“ sagði Anna. „Ég er lausingi, og þess vegna er mér alveg sama hvað fólk segir." Anna bjó í fremur litlu herbergi með að- gangi að eldhúsi, en hún tók á móti honum eins og væri hún húsfreyja á ensku sveita- setri. „Það var elskulegt af þér að koma,“ sagði hún. „Já, kærar þakkir, það var ágætt,“ greip Jim fram í fyrir henni. „Heyrðu mig nú, Anna, ég hef ekki komizt að með að segja þér, hversu þýðingarmikil persóna þessi Carlyle er. Hefurðu verið með honum í allt kvöld?“ Þegar hún kinkaði kolli til sam- þykkis, sló hann hrifinn á herðar henni. „Það er afbragð! Hann er milljónamæring- ur og íþróttamaður frá hvirfli til ilja. Þar að auki hefur hann nú bráðlega átt stefnu- mót við flestar laglegustu stúlkur heimsins. Hann verður skotinn í þeirn, en lætur þær svo fljótlega sigla sinn sjó. Hann er ákaf- lega vinsæll, og allt, sem hann aðhefst, verð- 4 ur undantekningarlaust forsíðuefni. Þér mun reynast mikil hjálp að láta sjá þig með honum.“ „Mér er það vel Ijóst, Jim,“ sagði Anna. „Það sagði mér það einn blaðamannanna niðri á hafnarbakkanum. Það var þessvegna sem ég rauk á hann.“ „Já, einmitt," mælti Jim. „Ef ég afræð að giftast honum,“ hélt Anna, áfram, „þá lofa ég þér því, að þú sem íulltrúi rninn gagnvart almenningi, skalt verða sá fyrsti, sem fær vitneskju um það.“ „Ég er djúpt hrærður og þakklátur." „Ekkert að þakka.“ „Jæja, góða nótt.“ Hann beygði sig ósjálfrátt niður að henni og kyssti hana beint á munninn. Það hafði verið áform hans, að þetta yrði nokkurskon- ar fljóta-koss, en skyndilega hafði hann sveipað hana örmum og þr^st að sér. Varir hennar voru stinnar og sakleysislegar, eins og á barni, og hún endurgalt koss hans af barnslegu trúnaðartrausti. Ráðvilltur og undrandi sleppti hann henni. „Góða nótt, pabbi,“ sagði hún. „Þú held- ur mig vera hálfgert flón, en þú ættir að kunna þitt eigið fag betur en þetta. Hvor hefur meiri möguleika til að vekja athygli í Hollywood — skynsamleg stúlka eða flóns- leg?“ Jim var forviða; bæði á henni og sínum eigin barnaskap. Það var næstum óskiljan- legt að fiamkoma hennar væri fyrirfram á- kveðin, en hann hefði samt sem áður átt að liafa haft hugboð um það. „Góða nótt,“ sagði hann og fór. MORGUNINN eftir hringdi hann til Pickerells. Þeir höfðu einmitt verið að ’’ ljúka við að skoða reynslukvikmyndina af Önnu. „Zimbal blátt áfram dansaði af á- nægju,“ sagði Pickereíl. „Hinar öru svip- breytingar hennar lýsa eins og leiftur um SKEMMUSÖGUR

x

Skemmtisögur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.