Skemmtisögur - 01.07.1949, Blaðsíða 16

Skemmtisögur - 01.07.1949, Blaðsíða 16
/ Þegax gestirnir voru komnir, settist Irene á legubekk og virti þá fyrir sér. Þegar mað- ur vinnur baki brotnu daglega, er ekki auð- velt að blanda sér fyrirvaralaust í gáskafull- an félagsskap, en hún naut þess að horfa á aðra og hlusta á glaðværðina. Allt í einu veitti hún athygli háum, lítið eitt rosknum manni, sem talaði við Sonju. Hann horfði til hennar án þess að líta af henni. Hún fann allt í einu til undarlegrar æsingar. „Sonja segir, að þér heitið Irene Almind,“ sagði hann, „má ég setjast hérna — hjá yður?“ Síðustu orðin sagði hann lágri röddu, eins og það væri sérstök náð að fá að sitja við hlið hennar. „Irene,“ sagði hann lágt, eins og hann væri að tala við sjálfan sig, og hafði ekki augun af henni. „Irene, það þýðir ró, vitið þér sjálfsagt — og það nafn hæfir yður mjög svo vel.“ Irene leit á hann, brosti ofurlítið og sagði: „Ég vissi ekki, að nafnið Irene þýddi ró, en ég þakka upplýsingarnar." „Þér eruð falleg,“ sagði liann, án þess að brosa. Irene leit niður og hún fann, að þetta var fyllsta alvara hans ... eða þá að hann var æfður leikari. Hefði hún getað lesið hugsanir hans, myndi hún hafa undrazt enn meir. Því að hann var hrærður. Honum fannst sem hefði hann alla ævi sína leitað þessarar stúlku. Það var eitthvað í fari hennar, sem heillaði hann ... eitthvað svalt, eins og vatn í djúpum brunni, en þó var eins og leyndur ylur byggi undir yfirborð- inu. Irene sat með spenntar greipar í kjöltu sér. Hún fann blóðið streyma fram í kinn- arnar. Svona hafði enginn talað við hana áður. „Hvað eruð þér gömul?“ spurði hann ... og þó undarlegt væri, fannst henni þetta ekkert óviðeigandi spurning. „Tuttugu og fjögra," svaraði hún og neyddi sig til að líta upp aftur. „Og ég er bráðum fertugur, svo það er heilt hyldýpi milli okkar. En við því er ekk- ert að gera.“ Hann brosti í fyrsta sinn til hennar og tók um hönd hennar og horfði á hana. „Á ég að spá fyrir yður? Ég er nefnilega dálítill spámaður ... nei, brosið nú ekki. Sjáum nú til. ... Þessi lína er lífslínan — falleg, löng lífslína, svo að þér getið verið ánægð með það. Hérna er hamingjulínan, hún sker lífslínuna alveg á réttum stað ... og svo komum við að því, sem mest er um vert, ástarlínunni! Nei, þetta er merkilegt! Það lítur út fyrir, að þér séuð einmitt núna í þann veginn að kynnast hinni miklu ást. . . . Hvað segið þér um það?“ Irene hló, en röddin titraði ofurlítið, þeg- ar hún svaraði: „Því átti ég ekki von á. ... Hvenær skyldi það verða?“ Hann hleypti í brúnirnar: „Ég sé einung- is, að það mun koma rnaður og biðja yð- ar. ...“ „Þér eruð nýbúinn að því,“ greip hún fram í fyrir honum hlæjandi. „Já, rétt segið þér,“ svaraði hann með gamansemri undrun. „Hugsa sér, þá erum það við, sem forlögin hafa haft í huga. Jæja, þá þýðir víst ekki að veita viðnám. Það fer, eins og það á að fara. En þá ætturn við líka að kynna okkur hvert öðru. Það ætti ekki að vera seinna vænna.“ (Hvern skyldi gruna, að hann hefði leik- ið þennan sama leik við annað kvenfólk áður? Og hver gat verið viss um, að hann væri fullkomlega sannfærður um, að þetta væri hin rnikla ást, er hann nú bar í brjósti?). „Þér vitið nafn mitt,“ sagði Irene. Hann liélt stöðugt í hönd hennar. „Ég heiti John Hauch. Nafnið er í síma- skránni, en ekki bláu bókinni. Ég hef aug- lýsingafirma. ...“ 14 SKEMMTISOGUR

x

Skemmtisögur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.