Skemmtisögur - 01.07.1949, Qupperneq 33
Það gerðist
í svefni
Smásaga eftir
G. ROBBINS.
HEFURÐU HEYRT söguna um mann-
inn, sem dreymdi um frönsku stjórnarbylt-
inguna? Það var dálítil gildra í sögunni, og
það er ekki víst að þú komir auga á hana,
enda þótt hún blasi við.
Sagan er svona: Við guðsþjónustu sofn-
aði roskinn maður, er hann lá á hnjánum
og laut höfði við bænagerðina. Hann
dreymdi, að hann væri eitt af fórnarlömb-
um fallaxarinnar, að hann lægi með höfuð-
ið á höggstokknum, og að exin gæti fallið
þá og þegar. Einmitt í sömu andrá uppgötv-
aði kona hans, er kraup við hlið hans,
hvers kyns var, og sló hann með sálmabók-
inni. Höggið kom á háls honum um leið og
öxin féll — og hann hné niður í kirkjugólf-
ið — dauður af sjálfsefjun. ... Það ósenni-
lega í sögunni liggur í augum uppi. Úr því
maðurinn vaknaði aldrei, getur hann ekki
hafa sagt drauminn. Það er augljóst mál, er
ekki svo?
Ástæðan til þess, að ég segi þessa skrítlu,
er sú, að hún er viðeigandi inngangur að
atviki, sem ég lifði sjálfur og ætla að segja
frá — atviki, sem er í sambandi við draum
og felur ef til vill einnig í sér gildru.
Ég kom heim í piparsveinaíbúð mína
klukkan átta, og þar eð regnið barði í rúð-
urnar, ákvað ég að eyða kvöldinu heima
með bók og vindil. Ég leitaði í bókahill-
unni og fann „Dr. Jekyll og mr. Hyde“ og
hugsaði með mér, að það gæti verið gaman
að lesa þessa óhugnanlegu bók í annað sinn.
Hann sló mig
[ andlitið, og ég
varð ofsareiður.
<S>--------------------------------------------------<«>
Þegar menn vakna af óhugnanlegum
draumi, verða þeir venjulega guðsfegnir,
en Gilkes varð hinsvegar dauðskelkaður.
4>---------------------------------------------------
SKEMMTISÖGUR
31