Bergmál - 01.03.1947, Side 7

Bergmál - 01.03.1947, Side 7
1947 BergmÁl drap Berenice dóttur sína og lét síðan leika sorgarlag eftir sjálfan sig við útför hennar. Þrátt fyrir blóðþorstann- voru Ptolemyarnir að ýmsu leyti ágætir. Undir vernd þeirra varð borgin Alexandria miðstöð lista og vísinda forn- aldarinnar, Málaralist, högglist, hljómlist, bókmenntir, stjarnfræði, stærð- fræði, byggingalist, heimsspeki. — Allar þessar listir hins siðmenntaða þjóðfélags blómguðust og döfnuðu í Aelxandriu við hliðina á siðlausum eiturbyrlunum og morðum. Ptolemyarnir réðu yfir mestu heimsborg fornaldarinnar og þeir höfðu aflað sér mikillar málakunnáttu. Þeir gátu sagt illar hugsanir sínar á mörgum tungumálum. Þannig var hinn hálf-siðmenntaði og hálf-villti arfur ungu, ærsla- gjörnu konungsdótturinnar, sem hljóp úr pinklinum til að grátbæna Caeser um hjálp til að ná aftur kórónunni. Ogreiddur rauður hárlubb- inn, tælandi bros, mjúkar og kvikar hreyfingar, og græskulaus fyndni, sögð á ágætri latínu, með grískum áherzlum. Það gat enginn staðizt hið aðlaðandi viðmót þessarar ungu egypzku stúlku. Caesar, sem orðinn var gamall maður og fyrir löngu var búinn að fá sig fullsaddan af óhófi í kvennamálum og drykkjuskap og hafði nokkrum árum áður verið nefndur eiginmaður allra kvenna (Omnium Mulierum Vir), fannst nú, fimmtíu og tveggja ár gömlum, sem væri hann aftur orðinn ungur og ákafur elskandi. Hann setti hana aftur í hásæti hennar, og varð þræll, — þessi drottnandi heimsins, — kenja og duttlunga Cleopötru. IV. Strax gat Cleopatra komið því til leiðar, að sjálfur hinn mikli Caeser færi að skipta sér af gjörspilltum stjórnmálum Egyptalands. Hún þvingaði hann til að drepa yngri bróður sinn, Ptolemy, sem var keppinautur hennar um kórónu Egyptalands. Því næst bauð hún honum í skemmti- ferð með sér yfir Níl í konunglegum skrautbát, hlöðnum purpura og gulli. Það var stefnumót ástarinnar, sem stóð frá kvöldhúmi til dag- mála. A meðan þau dvöldu í þessari fljótandi höll, sem knúin var með áratökum fimmtíu þræla frú Nubiu, létu þau sig dreyma gul'lna land- vinningadrauma, þótt hann væri orðinn flogaveikur og gamall hermaður en hún aðeins metorðagjörn og valdagráðug ævintýrakona. Caesar von- aði, að með hjálp Cleopötru gæti hann orðið herra Egyptalands, en Clepoatra lét sig dreyma um, að með aðstoð Caesars gæti hún orðið valda- 5

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.