Bergmál - 01.03.1947, Síða 8
Bergmál
Marz
mesta kona heimsins. Ti'l þess að binda ást þeirra og til þess, að draumar
hennar gætu fremur rætzt, átti Cleopatra að gefa honum son og
erfingja.
En á meðan þau sólunduðu tímanum í fjarstæðukennda draumóra,
voru óvinir Caesars í Róm starfsamir og urðu stöðugt hættulegri. Þeir
hugðust að steypa honum af stóli. Jafnvel vinir hans voru orðnir tor-
tryggilegir. Þeir álitu það vera rangt af hershöfðingjanum að slæpast í
viðhafnarherbergjum erlendra hefðarkvenna, þegar endurnýja þurfti gamla
sigra og vinna aðra nýja.
Það fór því svo, að bráðguminn reif sig nauðugur viljugur
úr örmum Cleopötru, vatt upp segl og sigldi af stað, ekki til Rómar,
heldur til Pontus í Litlu-Asíu. Það var viturlegra að snúa heim, sem
sigursæll hermaður, en sigursæll elskhugi. Hann varð að koma færandi
hendi heim, með sigur yfir nýlega undirokuðu landi.
Honum tókst að undiroka Pontus og lýsti sigri sínum í þremur snjöll-
um orðum: VENI EIDI VICI (Ég kom, ég sá, ég sigraði). Undir hand-
leiðslu Cleopötru hafði honum lærzt að skoða sjálfan sig sem guð.
A meðan hann var á leiðinni til Rómar sendi hann eftir Cleopötru,
svo hún gæti tekið þátt í sigurfögnuði hans. Hann fékk henni bústað 1
höllinni á Tiberbökkum og fyrir áeggjan „Nílarstúlkunnar“ fór hann
að leggja niður fyrir sér, hvernig hann ætti að kollvarpa rómverska
lýðveldinu. Strax og hann yrði konungur, lofaði hann Cleopötru að
giftast henni og gera hana að drottningu sinni. Því næst myndu þau
flytja stjórnaraðsetur heimsveldisins frá Rómaborg til Alexandríu. Þaðan
frá borginni, sem var miðstöð Miðjarðarhafssiglinganna myndu þau
stjórna heiminum.
Þannig voru draumar Caesars, eða öllu heldur draumar Cleopötru,
sem hann bergmálaði og átti að framkvæma. Því vitrasti maður Róma-
ve'ldis var orðinn auðsveipL, verkfæri í höndum vitrustu konu heimsins.
Hann var eins og sofandi maður, sem öðru hvoru gengur í svefni.
Rekinn áfram af miskunnarlausri harðyðgi Cleopötru, sem notaði/ sér
æsku sína og blinda ást Caesars. Hann nálgaðist því stöðugt rómversku
krúnuna. Hann gerði sjálfan sig að konsúl til tíu ára, því næst að ein-
valda ævilangt og loks að guðlegum syni Jupiters. Hann lét byggja
hof, helgað sér og Cleopötru og lét koma þar fyrir líkneskjum af sjálf-
um sér inn í helgidóminu, handa almenningi ti'l að tilbiðja.
6