Bergmál - 01.03.1947, Side 23
1947
BergmÁl
um foreldrum og þar hafði hán tekið sér leiksviðsnafnið „Mata Hari“,
arabiskt orð, sem þýða „Augu morgunsins“.
Canaris sem þá var á unga aldri, eins og fyrr getur sá hana fyrst í
hinum fræga næturklább Trovadero í Madrid. Þegar hann kom þar
inn var hán að dansa javanska hofdansa. Þegar dansinum var lokið bauð
Canaris dansmeynni að borði sínu. Hann var ekki laglegur, en hin
prássneska framkoma hans, ásamt ákafri metorðagirnd og stálvilja, hjálp-
aði honum til að ná valdi yfir kvenfólki. Samband þeirra byrjaði sem
meinlaust gaman. Canaris sótti næturklábbinn nótt eftir nótt, og brátt
höfðu tökizt með þeim ákafar ástir.
En ákafi ástarinnar entist ekki lengi. Canaris hafði ætlað Mata Hari
annað hlutverk, en njóta ástar sinnar. Yfirmaður hans, Eberhard von
Storher barón, sem var þýzkur sambassador á Spáni, þurfti á kvennjósnara
að halda til að senda til Parísar, svo fljótt sem kostur væri. Það má
bæta því við hér, að þessi sami von Stohrer barón var aftur gerður að
þýzkum ambassador á Spáni í seinustu heimsstyrjöld.
Canaris var í orði kveðnu hernaðarlegur ráðunautur á Spáni. En í
raun og veru hafði hann ekki svo hátíðlegum skyldum að gegna þar.
Starf hans var í því fólgið að undirbáa hernaðarlegar bækistöðvar fyrir
þýzka kafbáta meðfram hlutlausum ströndum Spánar, og stjórna njósn-
um í spánskum höfnum um skipaferðir bandamanna. Enn fremur réð
hann menn við spönsku hirðina til að draga ár áhrifum Bandamanna
gagnvart spönsku konungsfjölskyldunni.
Síðast en ekki sízt var starf Canaris í því fólgið að koma þýzkum
njósnurum yfir landamærin í Pyreniafjöllunum til Frakklands. Það var
þar sem Mata Hari komst yfir landamærin. Hán varð að fara til Parísar
með hollenzkri flutningalest. Þegar þangað kom varð hán að dansa í
Moulin Rouge og verða aðalnjósnari Þjóðverja í Frakklandi. Það var
ekki talinn nokkur vafi á því, að hán gæti með fegurð sinni og töfrandi
list hertekið París, sérstaklega gerði Canaris sér þó vonir um að henni
tækist að komast í kynni við háttsetta liðsforingja í landher og flota
Frakka.
Mata Hari var í fyrstu treg til að fara, en Canaris lofaði henni að
fundum þeirra s'kyldi brátt bera saman aftur. Hann taldi um fyrir henni
með loforðum og smjaðri. Hann lofaði að átvega henni mjög góðan
samning, svo hán yrði mesta dansmær í Evrópu.
21