Bergmál - 01.03.1947, Side 31

Bergmál - 01.03.1947, Side 31
1947 BergmÁl voru þau. Sonurinn átti vitanlega að ganga menntaveginn og var sett- ur til náms. Hann lauk háskóla- prófi í Cambridge í arkitektum og ætlaði að leggja þá grein bygginga- vísindanna fyrir sig. Hann gat þó aldrei fellt sig almennilega við starf- ið og fór því að hugsa um að leggja út á leikbrautina. Það var þó ekki eins auðvelt og honum kom til hug- ar í fyrstu. Hann þurfti að ganga á leikskóla, til þess að komast að á leiksviðinu og fjölskylda hans var ekki alveg á því að kosta hann til skólanáms að nýju og sízt til leik- listarnáms. En þá kom bréfspj aldið. Dag nokkurn sá hann auglýsingu í dag- blaði, þar sem umferðaleikflokkur auglýsti eftir leikara. James Mason sendi tilboð og var tekinn eftir fyrstu reynzluna. Hróður hans, sem leik- ara hefir upp frá því stöðugt farið vaxandi. Kvikmyndafélögin réðu hann í þjónustu sína og frægðar- brautin stóð honum opin. James Mason lifir annars rólegu lífi og berst ekki mikið á. Hann býr með konu sinni í gömlu en snotru húsi um klukkustundar járnbraut- arferð frá Lundúnaborg og þar vill hann dvelja öllum stundum, þegar hann ekki er á leiksviðinu. Hann heldur mikið upp á ketti og þau hjónin bæði. Eiga þau hvorki meira né minna en fjóra ketti og þarf mikla dýravini til að geta átt svo mörg dýr í Englandi, þar sem matarskömmt- unin er enn þá ströng. En þau hjónin vilja heldur spara eitthvað við sig í mat, til að geta haldið öllum köttunum. Þegar Mason er ekki að leika í neinni mynd, fer hann seint að hátta og seint á fætur. Amerísku kvikmyndafélögin hafa lagt mikið kapp á að klófesta Mason og fá hann til að fara til Ameríku. Nú fyrir nokkru síðan lét hann til leiðast og fór vesturum haf, en ekki er talið líklegt að hann ílengist þar, heldur muni hann hverfa aftur til Englands Von bráðar. James Mason er fæddur í Hudd- ersfield, 15. maí 1909. I tómstundum sínum þykir honum gaman að teikna og skrifa greinar í blöðin og er þá vanur að segja meiningu sína, jafn- vel þó kvikmyndirnar eigi í hlut. # # # # A. J. Cronin, sem á sínum tíma ákvað að hætta við læknalistina og helga sig skáldskaparlistinni, þarf ekki að iðra þess að hafa gert það. Einungis fyrir kvikmyndun bóka sinna hefir hann fengið 500 þúsund dollara, eða um þrjár milljónir króna.

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.