Bergmál - 01.03.1947, Side 36
Hann langar til
að leika Byron . . .
Cornel Wilde er einn þeirra leikara, sem ekki lætur hégómagirndina
hlaupa með sig í gönur, eða penginaflóð og frægð spilla eðli sínu. Hróður
hans fer vaxandi með hverri mynd sem hann leikur í og var hann þó
einu sinni ekki í miklu áliti hjá kvikmyndafélögunum.
Það var fyrst með fádæma góðum leik sínum í kvikmyndinni Unaðs-
ómar, sem Cornel Wilde náði sér verulega á strik og varð frægur, en
eftir það Jiefir hann heldur ekki þurft að vera kominn upp á náðir kvik-
myndafélaganna með að fá hlutverk. Hann er nú með allra eftirsóttustu
leikurum og kvikmyndafélögin telja myndum sem hann leikur í, öruggar
að ná vinsældum og útbreiðslu.
Margir íslenzkir kvikmyndahúsgestir muna eftir myndinni Unaðs-
ómar, sem sýnd hefir verið í Tjarnarbíó, við meiri vinsældir en flestar
aðrar myndir sem hingað hafa komið. Mun láta nærri að engin kvikmynd
hafi verið sýnd jafn oft hér á landi og þessi mynd. Cornel Wilde lék
hlutverk Chopins og þótti gera það með mikilli prýði.
Aður en Cornel Wilde lék í Unaðsómum, hafði hann ekki átt upp
á pallborðið hjá kvikmyndafélögunum. Hann hafði þá gengið á milli
kvikmyndafélaganna og verið bæði hjá 20th Century Fox og Warner
brors og var lánaður af því fyrr nefnda til Columbia félagsins til að leika
hlutverk Chopins í Unaðsómum. Eftir það hefir hann ekki verið lánaður.
Elann hefir að undanförnu leikið í ýmsum stórmyndum. Hér hefir
nýlega verið sýnd myndin Látum drottinn dæma, þar sem hann lék og
einnig hefir hann orðið frægur fyrir leik sinn í myndinni Centennial
summer.
Cornel Wilde segir að sig langi nú mest til að leika Byron og hefir
það komið í ljós, að hann er alls ekkert ólíkur honum í sjón, þegar hann
klæðist að þeirra tíma sið. Wilde scgir að Byron lávarður sc hlutverk að