Bergmál - 01.03.1947, Page 47

Bergmál - 01.03.1947, Page 47
Giovanni V er ga : Sagan, sem óperan fræga var gerð inn. i Cavalleria Rusticana Þegar Turiddu Mabba, sonur Nungiasar kom úr herþjónustunni, spók- aði hann sig á hverjum sunnudegi á torginu klæddur einkennisbúningi fótgönguliðsins. A höfði 'hafði hann rauða húfu, sem líktist húfu spá- mannsins. Stelpurnar ætluðu að gleypa hann með augunum, er þær gengu fram hjá honum á leið til kirkju og götustrákarnir hringsnerust í kringum hann eins og flugur. Hann hafði líka pípu með mynd af konunginum á hestbaki, sem leit út eins og hún væri lifandi, á eldspýtunum kveikti hann aftan á buxunum sínum og lyfti um leið öðrum fætinum eins og hann væri að sparka í einhvern. En dóttir Angelosar bónda, Lola, hafði enn ekki látið sjá sig ,hvorki við guðsþjónustur eða á grashjallanum, þar sem æskan var vön að hópast saman. — Hún var trúlofuð einhverjum frá Licodia, sem var fyrirmaður og átti fjóra múlasna á stalli. Þegar Turiddu komst á snoðir um það vildi hann fyrst endilega rista náungann frá Licodia á kviðinn. Hann gerði það samt ekki, hann lét aðeins vanþóknun sína í ljós með því að syngja allar þær níðvísur, sem hann kunni, fyrir utan glugga hinnar fögru meyjar. — Hefur hann ekkert að gera, hann Turiddu Nungiasarson — sögðu nágrannarnir, hann er úti allar nætur og kvakar eins og spörfuglsangi? Loks hitti hann Lólu, þegar hún var að koma heim úr pílagrímsferð til Madanna del Pericolo. En hún skipti ekki einu sinni litum þegar hún sá hann, fremur en hann kæmi henni ekkert við. En hvað mér þykir vænt um, að ég skyldi hitta þig, — sagði hann. — O, Turiddu, einhver sagði mér, að þér hefðuð komið heim í byrjun mánaðarins. — Já, og ég hef heyrt svo margt annað, — svaraði hann, er það satt, sem fólk segir, að þér ætlið að giftast fyrirmanninum Alfio? 45

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.