Bergmál - 01.03.1947, Page 48
Bergmál
Marz
— Já, cf guð lofar — sagði Lola og hnýtti um leið skýluklútinn
enn fastar. .
— Það sem guð vill, er nú víst svo og svo, cftir því sem á stendur
Þá hefur guð sennilega einnig viljað, að ég skyldi koma allan þennan
langa veg til þess að heyra þennan fagnaðarboðskap. Hann ætlaði að
láta sem ekkert væri en röddin kom upp um hann. Hann slóst í för
með stúlkunni og fjöðrin í húfunni dinglaði ólánlega fram og aftur.
Henni Ieiddist að sjá hann svona hryggan, en hafði ekki brjóst í sér
til að gefa honum nokkra von.
— Heyrið þér Turiddu, saeði hún loks, — nú fæ ég að fara aftur
til vina minna. Hvað mvndi fólk seeia, ef það sæi okkur saman?
— Það er rétt hjá vður, svaraði Turiddu. — Fvrst þér ætlið að giftast
Alfio, sem á fióra ljómandi múlasna á stalli er ekki vert að gefa fólki
tilefni til að slúðra. Aumingja mamma varð að láta sér nægia þennan
eina asna og litlu vinekruna, við þióðveginn meðan ég var hermaður.
Nú er af sem áður var, þér hugsið aldrei um hvernig allt var, þegar við
töluðumst við gegnum gluggann og þér gáfuð mér litla vasaklútinn
þann arna áður en ég fór. Guð einn veit hversu oft ég hef grátið í
hann. meðan ég var svo langt í burtu, að enginn kannaðist við bæ-
inn okkar.
Verið þér sælar Lóla. það er bezt að við gleymum hvað okkur hefur
farið á milli. Vináttu okkar er lokið.
Lóla giftist fvrirmanninum og á sunnudögum sat hún unni á gras-
hjallanum með hendurnar á maganum til þess að svna alla gullhring-
ana, sem maðurinn hafði gefið henni. Turiddu hélt unnteknum hætti
með að rápa fram og aftur með hendurnar í buxnavösunum og gefa
stelpunum auga. í raun og veru gramdist honum, að Lóla var orðin
svona rík og hún þóttist ekki sjá hann þegar þau mættust.
Ég skal finna hana f fjörunni, að mér heilum og lifandi tautaði
Turiddu við siálfan sig.
Beint á móti Alfio bió bóndinn Cola, hann ræktaði vínvið og átti
sand af neningum, eftir því, sem sagt var, og aðeins eina dóttur.
Turiddu réðst vinnumaður til hans og svo gerði hann sér oft erindi
inn í .húsið til þess að spjalla við stúlkuna.
— Þvf eruð þér ekki svona blíðmæltur við Lólu? sagði Santa.