Bergmál - 01.03.1947, Síða 53

Bergmál - 01.03.1947, Síða 53
Það getur Iíka orðið of mikið af ástinni. Látið hana ekki verða að blindri tilbeiðslu. Elskaðu mig aðeins minna „Elskaðu mig minna, clskan mín“. Ef þú lætur ást þína verða að hnýsni, getur það neytt manninn þinn til að yfirgefa þig. (Eftir Joan Thorntan). Það er eins og ást sumra kvenna sé blind að vissu leyti. Og það er þessari blindu að kenna, að hjóna- bandsskipið vill oft reka upp á sker. Það er það, sem veldur því, að „margur hrjáður og hjálparvana lífs- förunautur, lifir lífinu í þögulli ör- vænting“, eins og einhver komst að orði. Þetta kom mér í hug um daginn, þegar við vorum að undirbúa út- gáfu á tímaritinu, sem við vinnum við. I ritgerðakassanum, innan um skrítlur, orðskviði og smágreinar, fundum við vísu, eina af þessum nafnlausu flækingum, sem skýtur við og við upp kollinum í þessum aragrúa af prentuðu og endurprent- uðu dóti. Litla blaðið okkar er að mestu undir áhrifum kvenna, og flestar stelpurnar gátu ekki séð neitt merki- legt við þessa vísu. Eg stakk vís- unni í vasann, og síðan hefi ég borið hana undir ýmsa menn hér og þar. Yfirleitt fann vísan hljóm- grunn í hjörtum karlmannanna, en innihald hennar er svona: „Elsk- aðu mig minna en elskaðu mig lengur. Elskaðu mig rólega, og láttu það vara. Maður getur orðið þreyttur á faðmlögum, ef þau eru veitt hvar sem er og hvenær sem er. Þú ert alltaf kyrr við hlið mér. Gefðu mér næði til að láta mér þykja vænt um þig“. „Elskaðu mig minna!“ Getur þú skilið, hvers vegna nokkur eiginmað- ur í þessum gamla ástarsnauða 'heimi, kynni að hugsa þetta í fylgsn- um sálar sinnar? Eg á ekki við það, að hann aðeins sé á móti opinberum sýning- um, sem flestir ciginmenn hata, hleldur kvcinstafi þcssa nafnlausa 51

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.