Bergmál - 01.03.1947, Side 54

Bergmál - 01.03.1947, Side 54
Marz Bergmál --------------------------- höfundar. Það er altalað, að konan hans hringi hann oft upp í miðj- um vinnutíma, aðeins til að þvaðra smávegis við hann, og fá hann til að fullvissa hana um ást hans. Eg þekkti hann aftur á því, að hann roðnaði lítils háttar, þrátt fyrir sólbrúna húðina, þegar hann sá vísuna aftur. Og eins sá ég í gegn- um tilbúning hans um það, að hann þekkti náunga, sem ætti við slí'kt að búa. Auðvitað tóku flestir mennirnir vísunni með sama hlutleysinu eða á ópersónulegan hátt. En hvernig, sem þeir tóku þessu, voru þeir allir sarp- mála um þetta sama skilningsleysi eiginkonunnar. Ertu viðbúinn að ganga undir smápróf? Aðeins þrjár litlar spurn- ingar! En þær eru einskis virði, ef þeim er ekki svarað af strangasta heiðarleik og hreinskilni. 1. Ertu ifellt að nauða á honum með spurningum? Kemur þú hon- um með hnýsni þinni til að fjarlægj- ast þig og sveipa sig hjúpi blekk- inga og launungar? Við skulum nú samt ekki gera ráð fyrir því, að þú setjir hendur á mjaðmir óg byrjir nákvæma yfir- heyrslu, um hvar hann hafi verið fram að þessari stund, eða hver konan hafi nú verið? Við skulum segja, að hann hafi farið á sam- kqmu gamalla bekkj arfélaga. Þeg- ar hann kemur aftur, ræðstu þá á hann og spyrð í þaula? Að mestu leyti sömu spurninga, sem þú mund- ir spyrja dóttur þína eða systur, þegar þær kæmu úr samkvæmi? Þær hefðu gaman af þessum spurn- ingum! Þú myndir vilja sjá það allt sem gerðist fyrir hugskotssjónum þínum, sérstaklega allt, sem snerti elskuna þína. Þú myndir koma upp um þig með því að spyrja, hverjar hafi verið þar, hvað hún hafi sagt, og hvað hann hafi sagt, og hvernig hún hafi litið út, og í hverju hún hafi verið. En karlmenn taka ekki eftir þess konar. Þeir kalla þetta hégóma. Spekingur hefur sagt: „Konur eru alltaf að spyrja einhvers og menn eru alltaf að reyna að svara — en konurnar eru engu nær“. Oftast eru þessi svör búin til, til að hlífa þolinmæði þeirra við hin- um þreytandi kvennaspurningum. Ég þekki prest, sem skrökvar að konunni sinni eftir nótum — þegar hún stendur hann ekki að því. Það er furðulegt, hvað það er margt, sem hann ekki veit eða hefur ekki at- hugað, stundum! Eða man ekki, þegar hann man eftir því að gleyma. Konan hans hjúfrar sig að hon- um í ástúð sinni og reynir að sjá hann fyrir sér í huga sínum, þegar hann er að sinna daglegum störfum með sóknarbörnum sínum. En með - 52

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.