Bergmál - 01.03.1947, Page 63

Bergmál - 01.03.1947, Page 63
1947 BergmÁl enriþá á lífi. Það var spennandi uppgötvun og nú gat hann líka séð sól- geisla á sandinum. Hann gætti þess að hreyfa sig ekki en opnaði þó aðeins augun. Hann gat séð til skógarins. Við miðjan sjóndeildarhringinn sá hann stóran bing af greinum og laufi. Er hann starði á það, sá hann, hvar greinarnar skiptust og mannvera kom í Ijós, Carrigan dró djúpt andann. Hann fann ekki til meins við það. Með hendinni sem undir honum var tók hann fast um byssuskeptið. Hanri skyldi samt sem áður bera sigur úr býtum, ef guð lofaði honum aðeins að lifa ör- lítið lengur. Fjandmaður hans- nálgaðist. Þegar hann kom nær lokaði Carrigan augunum betur. Honum varð að heppnast, að láta líta svo út sem hann væri dauður, er komið yrði að honum. Þegar bófinn legði svo frá sér byssuna, sem hann vitanlega myndi gera, fengi hann tæ.kifæri til að grípa til sinna ráða, þá hefði hann tækifærið til að sigra. En ef hann léti á sér bæra, þó ekki nema augnalokin titruðu ofurlítið, þá'. . . Hann lokaði augunum til fulls. Hann svimaði og verkjaði aftur í höfuðið. Hann heyrði numið staðar í sandinum við hliðina á sér. Því næst heyrði hann mannsrödd. Hún sagði engin orð, en gaf bara frá sér óreglulegt hljóð. Carrigan sameinaði síðustu krafta sína með sterku viljaþreki. Honum fannst hann rísa hratt á fætur, en það var engu líkara en maður risi þar upp frá dauðum, svo hægt og rólega reisti hann sig upp. Byssan hékk máttlaus í hendi hans og vissi hlaupið til jarðar. Hann leit upp um leið og hann reyndi að lyfta byssunni til atlögu. Þá fyrst varð hann máttlaus en kom þó upp undrunarópi. Fjandmaður hans stóð þarna í sólskininu og starði á hann með stór- um dimmum augum, sem lýstu hræðslu. Það voru ekki karlmanns augu. A ævintýralegustu stundu lífs síns, tók Carrigan allt í einu eftir því, að það sem hann starði á var kvenmannsandlit. III. KAPÍTULI. Þarna stóðu þessar tvær manneskjur hver andspænis annarri, hreyf- ingarlausar eins og myndastyttur. Ef til vill stóðu þau þannig í tuttugu sekúntur, en Carrigan fannst það vera miklu lengri tími. Hann sá að- eins bláan himininn, skínandi sólina og stúlkuna, er féll inn í mynd hans af þessu tvennu. Byssan rann úr máttlausri hendi hans og líkaminn féll á olnbogann, sem undir honum var. Hann var kominn að þrotum, bæði

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.