Mosfellingur - 19.12.2024, Síða 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið
- Fréttir úr bæjarlífinu4
HelgiHald næstu vikna
sunnudagurinn 24. desember
kl. 13:00 Jólastund fjölskyldunnar.
Sr. Henning Emil Magnússon, Andrea
Gréta Axelsdóttir, Valgerður Jónsdóttir
og Árni Heiðar Karlsson sjá um stund-
ina. Barnakór Lágafellssóknar syngur.
kl. 18:00 Aftansöngur. Sr. Arndís
Bernhardsdóttir Linn þjónar, kirkjukór
Lágafellssóknar syngur undir stjórn
Árna Heiðars Karlssonar. Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir sópran syngur og
Matthías Nardeau leikur á óbó.
kl. 23:30 Miðnæturguðsþjónusta. Sr.
Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir þjónar,
organisti er Árni Heiðar Karlsson
og Matthías Nardeau leikur á óbó.
Jóladagur 25. desember
kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta. Sr.
Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir þjónar.
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir syngur,
Matthías Stefánsson leikur á fiðlu.
gamlársdagur 31. desember
kl. 15:00 Aftansöngur. Sr. Henning
Emil Magnússon þjónar. Kirkjukór
Lágafellssóknar syngur undir stjórn
Árna Heiðars Karlssonar organista.
Una Sveinbjarnardóttir leikur á fiðlu.
Aðventukvöld Lágafellssóknar fór fram
sunnudaginn 8. desember þar sem gestir
nutu ljúfra tóna og fallegra orða en húsfyllir
var við stundina.
Athöfninni stýrðu þær sr. Arndís G.
Bernhardsdóttir Linn og sr. Guðlaug Helga
Guðlaugsdóttir. Kirkjukór Lágafellssóknar
söng undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar
organista. Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir las
texta úr Lúkasarguðspjalli. Þá söng Gissur
Páll Gissurarson af sinni alkunnu snilld.
gefið í Hjálparsjóð sóknarinnar
Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mos-
fellsbæjar flutti einlæga hugvekju þar sem
hún minntist bernskunnar við jólatrjáa-
sölu.
Félagar úr Lions gáfu til Hjálparsjóðs
Lágafellssóknar en fjölmörg góðgerðarfé-
lög hafa lagt málefninu lið, m.a. Kiwanis-
klúbburinn Geysir, Félagsstarf aldraða í
Mosfellsbæ, Kvenfélag Mosfellsbæjar og
Soroptimistar.
Að endingu ávarpaði Rafn Jónsson
formaður sóknarnefndar samkomuna og
bauð gestum að þiggja heitt súkkulaði og
kræsingar í safnaðarheimilinu.
Áramótabrennan
færð til kl. 16:30
Á gamlárskvöld verður áramóta-
brenna haldin neðan Holtahverfis
við Leirvoginn þar sem þrettánda-
brennan er árlega. Mosfellsbær
stendur fyrir brennunni í samstarfi
við handknattleiksdeild Aftureld-
ingar en kveikt verður í kl. 16:30,
sem er ný tímasetning. Hin árlega
þrettándabrenna fer fram á sama
stað laugardaginn 6. janúar. Mos-
verjar leiða blysför frá Miðbæjar-
torginu kl. 17:30. Skólahljómsveitin,
Stormsveitin, Grýla og Leppalúði
og fleiri mæta. Björgunarsveitin
Kyndill verður með flugeldasýningu
að vanda.
Bæjarbúar tilnefna
Mosfelling ársins
Val á Mosfellingi ársins 2024 stend-
ur nú yfir. Lesendum gefst kostur
á að tilnefna þá sem þeim þykja
verðugir að bera nafnbótina. Öllum
er frjálst að senda inn tilnefningar
í gegnum heimasíðu blaðsins
www.mosfellingur.is. Þetta er í 20.
sinn sem valið fer fram á vegum
bæjarblaðsins Mosfellings. Íbúar
eru hvattir til að taka virkan þátt og
senda inn tilnefningar. Gjarnan má
fylgja með stuttur rökstuðningur
fyrir tilnefningunni og hvað við-
komandi hefur lagt til samfélagsins.
Áður hafa þessi hlotið nafnbótina:
Sigsteinn Pálsson, Hjalti Úrsus
Árnason, Jóhann Ingi Guðbergsson,
Albert Rútsson, Embla Ágústsdóttir,
Steindi Jr., Hanna Símonardóttir,
Greta Salóme, Kaleo, Jóhanna Elísa
Engelhartsdóttir, Sigrún Þ. Geirs-
dóttir, Guðni Valur Guðnason, Jón
Kalman Stefánsson, Óskar Vídalín
Kristjánsson, Hilmar Elísson, Sigmar
Vilhjálmsson, Elva Björg Pálsdóttir,
Halla Karen Kristjánsdóttir og Dóri
DNA. Útnefningin verður kunngjörð
í fyrsta blaði ársins 2025, 9. janúar.
Mosfellsbær, mennta- og barnamálaráðu-
neytið og Römpum upp Ísland hafa skrifað
undir viljayfirlýsingu um fjármögnun á
heitum potti með rampi fyrir hreyfihaml-
aða við Lágafellslaug.
Lágafellslaug er ein fjölsóttasta sundlaug
landsins með um 224.000 heimsóknir á ári
og er afar vinsæl meðal barnafjölskyldna.
Mun heiti potturinn með aðgengi fyrir öll
bæta enn frekar þjónustu og aðgengi fyrir
hreyfihamlaða sundgesti en hann verður
sérstaklega hugsaður fyrir hreyfihömluð
börn og ungmenni.
Potturinn verður sá fyrsti sinnar tegund-
ar á Íslandi.
einstakt verkefni og gott samstarf
Í fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið
2025 er gert ráð fyrir 30 milljónum króna til
þess að byggja pottinn og munu ráðuneytið
og Römpum upp Ísland hvort um sig leggja
10 milljónir króna til verkefnisins auk þess
sem óskað hefur verið eftir styrk frá Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga vegna uppbygging-
arinnar.
Frumkostnaðaráætlun gerir ráð fyrir að
framkvæmdin fari fram á árinu 2025.
„Þetta er einstakt verkefni og mun von-
andi hafa áhrif á hönnun heitra potta í
almenningslaugum í framtíðinni. Þá erum
við mjög ánægð með samstarfsaðilana en
við höfum átt í mjög góðu samstarfi við
verkefnið Römpum upp Ísland og þaðan er
hugmyndin sprottin,“ segir Regína Ásvalds-
dóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Á myndinni að ofan má sjá Harald Þor-
leifsson rampara, Regínu Ásvaldsdóttur
bæjarstjóra og Ásmund Einar Daðason
ráðherra skrifa undir í votta viðurvist á
bökkum Lágafellslaugar.
Til hliðar má sjá dæmi um útfærslu.
Nýr pottur með rampi við Lágafellslaug • Skrifað undir viljayfirlýsingu um fjármögnun
fyrsti heiti pottur sinnar
tegundar fyrir hreyfihamlaða
Haraldur, regína og Ásmundur einar
skrifuðu undir í votta viðurvist
dæmi um útfærslu
Ljúfir tónar og falleg orð á aðventu • Þétt dagskrá í Lágafellskirkju yfir jól og áramót
Húsfyllir á árlegu aðventu-
kvöldi Lágafellssóknar
gissur pÁll, guðlaug Helga,
regína, arndís linn og Árni Heiðar