Mosfellingur - 19.12.2024, Page 8
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin brúarlandi • fram undan í starfinu
Skrifstofa félagsstarfsins er opin
alla virka daga kl. 13–16. Sími félags-
starfsins er 586-8014. Forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ
er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda-
og félagsmálafræðingur, s: 698-0090.
Skrifstofa FaMos í Brúarlandi
er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16.
Stjórn FaMoS
Félag aldraðra
í Mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
Ágóðinn afhentur
Þann 9. des. síðastliðinn afhentu
basarkonur Lágafellskirkju 800
þúsund krónur sem var innkoma af
basarnum okkar og við skiptum þeim
í gafabréf í Kringlunni. Við vitum að
þau gjafabréf verða vel nýtt af þeim
sem þurfa á þeim að halda í bænum
okkar. Sannarlega gott starf sem
unnið er hér.
jólafrí félagsstarfsins
Síðasti opni dagurinn hjá okkur í
Brúarlandi er 19. des. og opnum við
aftur mánudaginn 6. janúar 2025 kl.
11:00. Hlökkum til að sjá ykkur aftur
og óskum ykkur gleðilegra jóla og
þökkum samfylgdina á árinu sem er
að líða. Kærleikskveðjur.
jónas Sigurðsson formaður
s. 666 1040 jonass@islandia.is
jóhanna B. Magnúsdóttir varaformaður
s. 899 0378 hanna@smart.is
Þorsteinn Birgisson gjaldkeri
thorsteinn.birgis@gmail.com
guðrún K. Hafsteinsdóttir ritari
s. 892 9112 gunnasjana@simnet.is
ólafur guðmundsson meðstjórnandi
s. 868 2566 polarafi@gmail.com
Ingibjörg g. guðmundsdóttir varamaður
s. 894 5677 igg@simnet.is
Hrund Hjaltadóttir varamaður
s. 663 5675 hrundhj@simnet.is
- Fréttir úr bæjarlífinu8
Jökull heldur Rauðu
jólin í Hlégarði í kvöld
Jökull Júlíusson söngvari mosfellsku
hljómsveitarinnar KALEO blæs til
góðgerðarsamkomu í Hlégarði í
kvöld, fimmtudaginn 19. desember.
Viðburðinn kallar hann Rauðu
jólin og mun ágóði kvöldsins renna
til Krabbameinsfélags Íslands.
Húsið opnar kl. 19:00 og verður
boðið upp á ýmis skemmtiatriði,
léttar veitingar, uppboð, fljótandi
veigar og að sjálfsögðu góða tónlist.
Jafnframt gefst tækifæri til að
dreypa á nýútkomnu víni Jökuls.
Um er að ræða samstarf hans og
athafnamannsins Róberts Wessman
um ræktun víns í hæsta gæðaflokki.
Miðinn á Rauðu jólin kostar 3.900
kr. og fer miðasala fram á Tix.is og
við hurð. Mosfellingarnir í KALEO
hafa verið á tónleikaferðalagi vítt og
breitt frá því í júní en eru nú komnir
heim í jólafrí.
Það er frábært að sjá hversu skemmtilegt
samstarf hefur myndast á milli mosfellskra
tónlistarmanna og knattspyrnunnar hjá
Aftureldingu.
KALEO hefur verið framan á búningum
meistarflokks karla síðastliðin þrjú ár en
um var að ræða sögulegan samning sem
hefur vakið heimsathygli frá upphafi. Þrír
af meðlimum Kaleo spiluðu fótbolta með
yngri flokkum Aftureldingar og þótti Jökull
söngvari nokkuð liðtækur leikmaður.
Samstarfið við Kaleo hefur verið frábært
í alla staði, haldnir hafa verið styrktartón-
leikar fyrir félagið og merki félagsins hefur
verið sýnilegt um allan heim.
gdrn og gildran bættust við
Tónlistakonan Guðrún Ýr eða GDRN er
framan á búningum meistarflokks kvenna
en Guðrún Ýr spilaði upp alla yngri flokk-
ana með Aftureldingu og lék fyrir meistar-
flokkinn áður en hún meiddist illa og lagði
skóna á hilluna.
Guðrún Ýr er ein vinsælasta tónlistar-
kona landsins og hefur hún haldið tónleika
til styrktar meistaraflokki kvenna.
Í vor bættist svo mosfellska hljómsveit-
inn Gildran í hópinn þegar þeir gengu til
samstarfs við Hvíta Riddarann. Gildran
var stofnuð árið 1985 og heldur því upp á
40 ára afmæli á næsta ári. Þeir félagar voru
útnefndir bæjarlistamenn Mosfellsbæjar
2023. Þess má geta að Gildran samdi Aft-
ureldingarlagið á sínum tíma en lagið hefur
fylgt félaginu um árabil.
Flottir styrktaraðilar í fótboltanum • Samstaða í sveitinni • Vekur athygli víða
mosfellskt tónlistarfólk styður
við mosfellska knattspyrnu
arnór gauti, guðbjörn smári og anna pálína
sendu
inn þína
tilnefningu
2024
www.mosfellingur.is