Mosfellingur - 19.12.2024, Blaðsíða 16
- Bæjarblað í Mosfellsbæ í 22 ár16
Lágafellskirkja fimmtudaginn 19. desember kl. 20
Hátíðleg og notaleg stund í fallegu umhverfi.
Miðasala í kirkjunni. Aðgangseyrir kr. 3.000 en 1.500 fyrir eldri borgara.
Einnig er hægt að taka frá miða á netfanginu diddukeli@simnet.is.
Þakkargjörðarhátíð var haldin í fyrsta
sinn í Hlégarði fimmtudaginn 28. nóv-
ember.
Hlégarður blés til kalkúnaveislu í
hádeginu í samstarfi við Reykjabúið.
Flyglinum í félagsheimilinu var rúllað út
á gólf þar sem Pálmi Sigurhjartarson lék
fyrir gesti. Hans Jensson blés í saxófón og
Jón Magnús bóndi á Reykjum tók lagið.
Meistarakokkurinn Magnús Már
Haraldsson sá um að matreiða veislu-
mat úr heimabyggð ofan í hátt í 200
veislugesti.
Þakkargjörð er vinsæl í Bandaríkjun-
um og er haldin á fjórða fimmtudegi í
nóvember. Hátíðinni var upprunalega
ætlað að vera tækifæri til að þakka fyrir
uppskeru ársins sem var að líða.
þingmenn úr kjördæminu hansi og pálmi
Hlégarður og Reykjabúið tóku höndum saman
Þakkargjörðarhátíð
haldin í fyrsta sinn
maggi með kalkúninn
jón magnús, magnús,
kristín, pálmi og hilmar
Foreldrafélaga Lágafellsskóla stóð fyrir skemmtilegum jólafrímínútum á dögunum.
Jólasveinar kíktu í heimsókn og boðið var upp á kakó, kleinur og grillaða sykurpúða.
Þetta var skemmtilegur viðburður og veðrið lék við Mosfellinga þennan dag.
Reykjalundur tók nýlega á móti glæsilegri
fartölvugjöf en um er að ræða nokkrar
fartölvur ásamt helstu fylgihlutum eins og
lyklaborðum og skjám.
Andvirðið hefur safnast í sérstöku átaki
á vegum SÍBS, eiganda Reykjalundar, sem
staðið hefur yfir undanfarnar vikur.
Fartölvurnar nýtast víðsvegar hjá ýms-
um hópum starfsfólks Reykjalundar í
mikilvægu meðferðarstarfi fyrir sjúklinga
okkar.
Reykjalundur þakkar kærlega fyrir
veglegan stuðning og sendir velunnurum
hlýjar kveðjur.
Fartölvur að gjöf
til Reykjalundar
Átak á vegum SÍBS síðustu vikur • Nýtast starfsfólki vel
fartölvurnar afhentar
Jólafrímínútur vöktu lukku