Mosfellingur - 19.12.2024, Qupperneq 48
- Aðsendar greinar48
www.bmarkan.is
Smiðjuvegi 60 (rauð gata) Kópavogi - Sími 557 2540
Hj‡lmar Guðmundsson
Lšggildur hœsasm’ðameistari
s:6959922
fhsverk@gmail.com
Þverholti 3 - Sími: 566-6612
FÓTAAÐGERÐASTOFA
MOSFELLSBÆJAR
Leirvogstunga 27, 270 Mosfellsbæ, sími: 864 6600
Gólfefna lausnir
fyrir heimili
og fyrirtæki
Bestu óskir um gleðileg jól
Meirihluti B-, S- og C-lista í bæjarstjórn
Mosfellsbæjar leggur mikla áherslu á
málefni barna og ungmenna og fjöl-
skyldna þeirra enda vitum við að það
þarf þorp til að ala upp barn.
Eins og komið hefur fram samþykkti
bæjarstjórn að setja fram sérstaka að-
gerðaáætlun í þágu barna árið 2025. Sú
aðgerðaáætlun er einstök í starfi sveit-
arfélagsins.
Einnig er unnið að innleiðingu hugmynda-
fræði Barnvæns sveitarfélags ásamt því að
sjónum verður sérstaklega beint að börnum í
framkvæmd Okkar Mosó árið 2025.
Barnvænt sveitarfélag
Barnvænt sveitarfélag skuldbindur sig til þess
að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
og vinna markvisst eftir hugmyndafræði hans.
Vonir standa til þess að næsta vor ljúki innleið-
ingarferli og í framhaldinu fái Mosfellsbær við-
urkenningu sem Barnvænt sveitarfélag. Innleið-
ing sáttmálans þýðir að sveitarfélagið noti hann
sem viðmið í sínu starfi og að ákvæði hans verði
rauður þráður í starfsemi þess.
Segja má að starfsfólk sveitarfélagsins og
kjörnir fulltrúar setji upp barnaréttindagleraugu
til að rýna alla verk- og ákvarðanatökuferla inn-
an sveitarfélagsins með hliðsjón af sáttmálanum.
Þeir grunnþættir sáttmálans sem byggt er á eru
þekking á réttindum barna, að ætíð skuli byggja
ákvarðanir á því sem barninu sé fyrir bestu, jafn-
ræði allra barna, virðing fyrir skoðunum barna
og réttur allra barna til lífs og þroska. Ljóst er
að innleiðing hugmyndafræðinnar styður við
innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í
þágu farsældar barna.
Krakka Mosó
Ákvörðun hefur verið tekin um að þátttaka í
lýðræðisverkefninu Okkar Mosó verði bundin
við börn árið 2025. Sú ákvörðun styður sann-
arlega við innleiðingu barnvæns sveitarfélags.
Útfærsla og framkvæmd kosninganna verður
unnin í samstarfi stjórnsýslunnar og skólanna
á vormánuðum og verður mjög áhugavert að
fylgjast með því verkefni. Krakka Mosó
verður spennandi þáttur í að efla lýð-
ræðislega þátttöku barna og skilning á
lýðræðislegu ferli.
Börnin okkar
Að síðustu nefni ég til sögunnar að-
gerðaáætlunina Börnin okkar sem bæj-
arstjórn samþykkti að setja 100 milljón-
ir í á árinu 2025. Þetta er viðbótarfjármagn við
það margvíslega starf sem sveitarfélagið sinnir
nú þegar í þágu barna. Í aðgerðaáætluninni
Börnin okkar, sem unnin var í miklu samstarfi
hagaðila, er áherslan sett á almennar forvarnir,
snemmtækan stuðning við börn og styrkingu
barnaverndar.
Ekki þarf að fjölyrða um þá ógnvænlegu þró-
un sem átt hefur sér stað í íslensku samfélagi og
nægir þar að nefna mikla fjölgun tilkynninga á
landsvísu um börn sem sýna áhættuhegðun.
Þess vegna eru snemmtækur stuðningur og
styrking barnaverndar svo mikilvægir þættir í
aðgerðaáætluninni.
Sem dæmi um snemmtækan stuðning og
almenn forvarnaverkefni má nefna aukið að-
gengi að sálfræðiþjónustu og félagslegri ráðgjöf,
hækkun frístundaávísunar, lýðheilsuverkefni
fyrir unglinga í íþróttahúsum, aukin fræðsla og
stuðningur fyrir foreldra, gerð samskiptasátt-
mála skólasamfélagsins og reglur um snjall-
símanotkun á skólatíma svo eitthvað sé talið.
Ef samfélag vill bæta uppeldisskilyrði barna
sinna, gera umhverfi þeirra enn þroskavænlegra
og já almennt sinna börnum og ungmennum
betur þá eru forvarnir af ýmsum toga lykilatriði.
Meirihluti B-, S- og C-lista hefur í sínum störfum
lagt áherslu á mikilvægi forvarna og eflingu lýð-
heilsu til að bæta heilbrigði, líðan og aðstæður
einstaklinga og hópa. Um þær áherslur hljótum
við að vera sammála.
Ég sendi Mosfellingum öllum bestu jólakveðj-
ur og óskir um enn barnvænna nýtt ár 2025.
Anna Sigríður Guðnadóttir
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Börnin í forgrunni
Nýverið samþykkti bæjarstjórn fjárhags-
áætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2025.
Um er að ræða metnaðarfulla rekstrar-
og fjárfestingaráætlun.
Fjárfestingarnar endurspegla þann
vöxt sem hefur átt sér stað í Mosfellsbæ
síðustu árin en auk þess er nauðsynlegt
að huga að viðhaldi eldri mannvirkja.
Samtals hljómar fjárfestingaráætlun í
A- og B-hluta upp á rúma 4 ma. króna.
Þar af nema fjárfestingar í skólum og
íþróttamannvirkjum um 62%.
Stærstu einstöku fjárfestingarnar eru
bygging nýs leikskóla í Helgafellslandi
sem verður tekinn í notkun næsta
haust og fyrirhuguð uppbygging á
Íþróttamiðstöðinni að Varmá. Eins er
220 m.kr. áætlaðar vegna framkvæmda
á skólalóðum. Gert er ráð fyrir afgangi af
almennum rekstri sveitarfélagsins upp á
rúmar 700 milljónir.
Íþróttir fyrir alla
Áfram verður haldið með uppbygg-
ingu á Varmársvæðinu, en í áætluninni
er gert ráð fyrir að verja um 800 millj-
ónum í nýjan aðalvöll, hlaupabraut
og hönnun á þjónustu- og stúkubygg-
ingu. Eins verður frágangur kláraður á
íþróttahúsinu við Helgafellsskóla, sem
mun létta á álagi á hin íþróttahúsin.
Því til viðbótar verður um 200 milljón-
um varið í viðhald á íþróttamiðstöðvum.
Mikil fjölgun iðkenda og metnaðarfullt
barna- og afreksstarf gerir ríka kröfu um
viðunandi aðstöðu og verður að sjálfsögðu séð
til þess að svo verði áfram í Mosfellsbæ.
Menning eykur lífsgæði
Núverandi meirihluti hefur haft lýðheilsu- og
menningarmál í forgrunni og verða engar breyt-
ingar þar á í nýsamþykktri áætlun. Hlégarður
verður sem fyrr í umsjá bæjarins og hefur það
verkefni gengið vonum framan og mikil ánægja
skapast í kringum það.
Á árinu 2025 eru um 300 viðburðir
áætlaðir í Hlégarði og er það til marks
um hve mikilvægt gott samkomuhús
er fyrir bæjarfélag eins og Mosfellsbæ.
Tæpar 270 milljónir fara í menningar-
mál á árinu 2025 og ber þar helst að
nefna rekstur bókasafnsins, Í túninu
heima og fleiri spennandi viðburði af
hálfu bæjarins.
Bærinn í nýju ljósi
Það verður ekki slegið slöku við í
endurnýjun á götulýsingu bæjarins, alls
verður varið um 70 milljónum í að LED-
væða bæinn á árinu 2025. Verkefnið er
kostnaðarsamt en sparar sveitarfélag-
inu til lengri tíma í formi lægri rekstr-
arkostnaðar. Það er mjög mikilvægt að
horfa til lengri tíma í ákvarðanatökum
sem þessum og hefur núverandi meiri-
hluti tamið sér það verklag.
Þrátt fyrir metnaðarfulla fjárhagsá-
ætlun þá hefur núverandi meirihluti B-,
C- og S-lista lagt mikla áherslu á ábyrga
fjármálastjórn og að rekstur bæjarins
sé sjálfbær. Það fylgir því mikil ábyrgð
að stýra sveitarfélagi og sér í lagi þegar
vöxturinn er mikill. Því þarf að huga vel
að forgangsröðun verkefna, það gefur
auga leið að í því efnahagsumhverfi
sem við búum við í dag er aðhald
nauðsynlegt.
Fjárhagsáætlunin er aðgengileg á
mos.is og hvetjum við bæjarbúa til að
kynna sér hana, hægt er að fá mjög góða og
myndræna yfirferð á helstu atriðum í greinar-
gerð með fjárhagsáætlun.
Halla Karen Kristjánsdóttir bæjarfulltrúi B-lista
Aldís Stefánsdóttir bæjarfulltrúi B-lista
Sævar Birgisson bæjarfulltrúi B-lista
Örvar Jóhannsson bæjarfulltrúi B-lista
Metnaðarfull fjárfestingaráætlun