Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1955, Qupperneq 29
27
hann hefði verið notaður til eldiviðar, rafttekju og kola-
gerðar, því að kol og raft hefði hann selt til mikilla muna.
Hann sagði, að það væri að vísu satt, að landið þar sem
skógurinn hefði verið, myndi blása upp allmikið, smám
saman eftir að skógurinn væri horfinn, en bætti svo við
í hálfgerðu gamni, að þá myndi hann sjálfur verða kom-
inn undir græna torfu. Telur Sæmundur, að því miður
muni margir hafa verið jafn skeytingarlausir um skóginn
eins og Jón og sé því ekki ástæða til að álasa honum
írekar en flestum öðrum. Gamall maður, Jón Pálsson í
Víðivallagerði, sagði Sæmundi frá því, að bróðir sinn,
fæddur fyrir aldamótin 1800, hefði verið bóndi á Þorgerð-
arstöðum og hefðu í hans tíð verið birkibitar í eldhúsi þar
á bænum. Voru þeir úr Kiðjafellsskógi. Þeir voru kantaðir
á hliðum og lítið eitt á röðum. Jón Pálsson sá sjálfur
þessa birkibita. Húsið var 5 álnir á breidd og bitarnir
heldur lengri. Voru bitar þessir líkir að digurð í báða
enda, og sýnir það hæðina.
Um þær mundir skrifaði Sæbjörn Egilsson á Hrafnkels-
stöðum Sæmundi bréf, þar sem hann segir frá skógum í
Fljótsdal og búnaðarháttum. Segir hann, að fram á miðja
19. öld hafi verið miklir skógar víðs vegar um dalinn.
Voru þá skógar um alla hlíð Norðurdalsins frá Valþjófs-
stað að Kleif. Mestur skógur var í Valþjófsstaðarlandi, þar
á milli og Hóls. Var gengið mjög á skóg þennan, og var
hann mikið notaður til eldsneytis og kolagerðar og einnig
til sölu í fjarðarsveitirnar, þar sem kol voru í háu verði
gegn sjávarvöru. Segir Sæbjörn, að fjárhús haí'i lítið tíðk-
ast um þessar slóðir fyrr en á öndverðri 19. öld. Timbur
hafi menn lítið keypt nema í bæjarhús, en skógviður var
notaður í útihús. Hann segir og, að raftviður hafi verið
vel borgaður, þar sem hann fékkst keyptur. Skógviðar-
hrísla, sem hafði gildleika til að vera rafttæk á þriggja
álna lengd, kostaði hálfan ríkisdal, og er það gífurlega
hátt verð í samanburði við bæði vinnulaun og verðlag á
flestum nauðsynjum á þeim tímum. Vinnumannslaun yfir