Skógræktarritið - 15.05.2006, Page 49

Skógræktarritið - 15.05.2006, Page 49
 Erlendur Halldórsson & *►. AJ. Skógræktarfélag Heiðsynni Eitt afsprengi þeirrar ræktunar- og uppbyggingaröldu sem fór um sveitir um og upp úr miðri síð- ustu öld var Skógræktarfélag Heiðsynninga. Það var stofnað í lok maímánaðar árið 1951, en nánari tímasetningu á stofn- fundardag er ekki að fá þar sem ekki finnast neinar gerðabækur félagsins frá fyrri árum, hafi þær á annað borð verið skráðar. En það er gömul og margsögð saga að fundargerðabækur frá fyrri tímum eru mjög svo gjarna glataðar þegar til á að taka. Líða svo 40 ár í sögu þess félags sem hér um ræðir að ekki verður stuðst við slík gögn og það er ekki fyrr en þegar nýju lífi er blásið í það árið 1990 að finnast skráðar og undirritaðar fundargerðir þess. Þessi vöntun heimilda kemur þó ekki svo mjög að sök. Hvort- tveggja er að félagið starfaði aðeins á einu afmörkuðu sviði, þ.e. að skógrækt, og ekki urðu tíð mannaskipti í stjórn þess fyrstu 3-4 áratugina. Skýrslur um starfsemi félags- ins og fjárreiður, með undirritun stjórnar, voru og sendar Skóg- ræktarfélagi íslands árlega og má af þeim gera sér næsta skýra grein fyrir viðfangsefnunum hverju sinni. Fyrstu tildrög að stofnun Skógræktarfélags Heiðsynninga má rekja til tvennra upptaka. Af svarbréfi frá Hákoni Bjarna- syni, þáverandi skógræktarstjóra, dagsettu 24. mars 1951, til Þórðar Gíslasonar á Ölkeldu, sést að Þórður, sem þá, og um langa hríð, var formaður Ungmenna- félags Staðarsveitar, hefur snúið sér til Skógræktar ríkisins með fyrirætlanir og hugmyndir sínar og ungmennafélagsins um skóg- rækt og beiðst þaðan liðsinnis. Bréf þar að lútandi frá Þórði hefurverið dagsett 4. mars 1951. Kafli úr svari Hákonar hljóðar SVO: „—En um ungmennafélagið og fyrirætlanir þínar verð ég að segja, að mér líst vel á. Nú hagar svo til að í Eyjahreppi er vfst mikil hreyfing meðal nokkurra manna, og þó einkum kvenna, um að stofna skógræktarfélag, og ætti ungmennafélagsskapur þinn að reyna að hafa samflot við þau. Lögin mæla svo fyrir að skóg- ræktarfélög geti fengið styrk til girðinga og plöntunar, en ekki er hægt að láta hann ganga beint til ungmennafélaga. Styrkirnir eru árlegir, og fyrir þá má með tíð og tíma koma upp mörgum girð- ingum. Ennfremur hafa skóg- ræktarfélög sérstök kjör hvað verð plantna snertir. - Ég tel því rétt að þú, ásamt öðrum áhuga- mönnum hefðir forgöngu um Opiim skógur í Hofsstaðaskógi ágúst 2005. Mynd: B.J. SKÓGRÆKTARRITIÐ 2006 47
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.