Skógræktarritið - 15.05.2006, Side 58
Stór skógarsvæði hafa eyðst
vegna búfjárbeitar og annarrar
landnýtingar.7 í nágrannalöndum
okkar hefur orðið sambærileg
skógareyðing meðal annars
vegna ágangs beitardýra.8g Hér á
landi eins og vfða annars staðar
hafa skógar verið endurheimtir
með friðun.10 Engu að síður er
sjálfbær nýting oft raunhæfara
markmið en algjör friðun. Vöxtur
plantna takmarkast af gæðum í
umhverfinu." Bæði næringarefni
í jarðvegi, birta til ljóstillífunar
og innri forði plöntunnar
takmarka endurvöxt plantna eftir
beit.1213 Þörf er meiri upplýsinga
um vöxt birkis eftir beit.14 Birki
framleiðir einnig varnarefni gegn
beit'5 en þó virðist birkið hér
framleiða minna af varnarefnum
en finnskt birki.16 f þessari grein
er sérstaklega spurt um áhrif
sauðfjár á birkið, en nokkuð er
einnig vitað um áhrif annarra
jórturdýra, t. d. hreindýra, á
birkið. I7',s
Beitardýr geta haft bein áhrif
á vöxt og fræframleiðslu birkis.19,20
Búfé fjarlægir brum, lauf og
sprotaenda og getur þannig haft
áhrif á vöxt birkisins. Rannsóknir
benda til þess að árstími beitar
hafi töluverð áhrif á sfðari vöxt
og fræframleiðslu. Hér á Iandi
getur beit valdið auknum skaða
snemma að vori.21
Afföll eru á ungum
birkiplöntum íbeitarlandi22 en
beit á eldra birki getur einnig haft
áhrif á vöxt og fræframleiðslu.
Beit er meðal þeirra þátta sem
móta vöxt plantna í náttúrlegum
vistkerfum. Hófleg beit þarf ekki
að draga verulega úr framleiðni
gróðurs, enda þótt mikil beit
skaði gróðurinn. Þegar beitardýr
ganga á kjarri hafa þau áhrif á
náttúrlegar fæðukeðjur. Fjöldi
búfjár er þó ákveðinn af
mönnum, sem þurfa að hafa
þekkingu á áhrifum beitarþunga
til lengri tfma litið. Beitaráhrif
búfjár eru meðal margra þátta
sem geta takmarkað vöxt gróðurs
á norðurslóðum,23 en slík áhrif
tengjast jafnframt búsetu manna.
Markmið rannsóknanna sem
hér er lýst var annars vegar að fá
yfirsýn yfir mikilvægi beitar fyrir
birkiskógasvæði á Norðaustur-
landi og hins vegar að kanna
áhrif beitar á birki í beittum og
friðuðum skógum í Fnjóskadal.
Hliðstæðar rannsóknir á land-
nýtingu á birkiskógum hafa ekki
áður verið gerðar hér á landi.
1. mynd. Birki í]ökulsárgljúfrum. Ljósm. Helgi Hallgrímsson.
56
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2006