Skógræktarritið - 15.05.2006, Page 99

Skógræktarritið - 15.05.2006, Page 99
ömxJacja ejjti/i Ö^m <Jí. íija/u/aAxm Kristján sat við skrifborðið og kom sér ekki að nokkru verki. Ýmist fiktaði hann við bréfaklemmur eða strengdi rauða teygju milli fingra sér. í hvft- málaðri gluggakistunni var urmull af svörtum flugum. Ein og ein var að reyna að komast út, en flestar voru dauðar eða þær lágu afvelta á bakinu og mjóir fætur þeirra fálmuðu blindandi út í rykmett- aða svækjuna. Þessi daguryrði erfiður, hugsaði Kristján, ekki tilbreytingarlaus eins og hinir dagar ársins, heldur erfiður. f gær hafði forstjórinn viljað finna hann, kallað hann inn á teppi eins og starfsfólkið orðaði það. Það var ekki oft sem hann átti erindi við Kristján. Stund- um töluðust þeir ekki við mánuðum saman, hittust f mesta lagi á snyrtingunni og kinkuðu kolli hvor til annars í speglinum eða þá í lyftunni og hún var svo hraðgeng, að það tók því ekki að fitja upp á sam- ræðum. En sem sagt í gær hafði hann fengið þessi skilaboð. Kannski er það launahækkun, hugsaði hann, en minntist ekkert á það við konuna, þegar hann kom heim í hádeginu, vildi ekki vekja hjá henni falskar vonir. Klukkan tvö stóð hann svo við dyrnar á skrifstofu forstjórans, lagaði bindið og gáði að buxnaklaufinni eins og hann var vanur, þegar mikið var f húfi. Því næst bankaði hann tvö létt högg. „Kom inn," var kallað og þegar hann opnaði stóð forstjórinn úti við glugga og frádregin, efnismikil gluggatjöldin voru eins og rammi um mildan hnakkasvip hans. Hann snéri sér við. „Ó, ert það þú," sagði hann vingjarnlega, „fáðu þérsæti." Kristján gerði það, en forstjórinn byrjaði að ganga um gólf og leðurbrak úr velhirtum, svörtum skóm hans hvarf ofan í þykkt teppið og varð þar að smá tísti. Þumal- fingurna hafði hann f vestisvösunum og hann bauð Kristjáni að setjast. „Eins og þú veist, þá ætlum við að hefja miklar framkvæmdir í sumar," sagði hann og staðnæmdist fyrir framan Kristján, „bæta stórri álmu við þetta hús hérna." Kristján sat teinréttur og það var eins og hann væri með sjúkrakraga um hálsinn. Hendurnar hvíldu á hnjánum og hann líkt og hlustaði með öllum líkamanum og fingurgómarnir vissu fram og hann hlustaði með fingurgómunum líka. „í gær var teikningin samþykkt," hélt forstjórinn áfram, „og það kemur í ljós, að tréð hérna úti í porti þarf að fjar- lægja." Tréð, hugsaði Kristján, fjarlægja tréð?...Nei það er óhugsandi. Þessi eini ljósi punktur í því umhverfi, sem starfsfólkinu hafði verið úthlutað. Hann ætlaði að malda í móinn, en komst ekki að. „Á morgun koma hingað nokkrir verkamenn og kranabíll," sagði forstjórinn, „og mig langar að biðja þig að hafa yfirumsjón með verkinu, sjá um að allt fari vel fram." Ójá...Átti nú að ota honum í skítverkin, hugsaði Kristján. Upphátt sagði hann. „Á ekki framkvæmdadeildin að annast svona lagað?" „|ú, strangt til tekið," sagði forstjórinn, „en þú hefur tiltrú fólksins hér í þessu fyrirtæki og verði einhver óánægja með þessa ráðstöfun, ættir þú að geta mildað hana." Hann gekk nú yfir að skrif- borðinu sínu og studdi þar á hnapp. „Bfður nokkur?" umlaði hann og óraunveruleika- blærinn yfir þessu öllu saman var þess háttar, að Kristjáni fannst rétt sem snöggvast að forstjórinn væri á eintali við bréfahrúguna á borðinu. SKÓGRÆKTARRITIÐ 2006 97
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.