Skógræktarritið - 15.05.2006, Side 101

Skógræktarritið - 15.05.2006, Side 101
hæðast að honum, þangað til hann kæmi aftur, skríðandi í duftinu, auðmjúkur, þurfandi, og hringurinn myndi lykjast um hann á ný. Síminn hélt áfram að hringja, burr...urrrr og minnti á villidýrin í skóginum og flugurnar lágu afvelta í hvítlakkaðri gluggakistunni. Hann tók upp tólið skjálfandi hendi og varð að styðja við það með hinni. Það var eins og hann hefði rétt sem snöggvast stigið út úr mannheimi, en væri nú kominn aftur. Allt var svo framandi og röddin í símanum óvinveitt. „Má ég koma með reikning til uppáskriftar?" sagði röddin og hann muldraði eitthvað, sem heita átti já og lagði síðan tólið á. Svo leit hann út úr glerbúri sfnu og sá hvar stúlka kom gangandi í gegnum stóra salinn, framhjá bókhaldsvélum, sendisveini að gantast við vélritunarstúlkur og fulltrúum með lítil, grá nafnskilti á borðum sínum, eins og þessir fulltrúar væru vélar, sem þyrfti að merkja vandlega vegna vörutalningar um áramót. Stúlkan opnaði dyrnar og afhenti honum reikning. Hann hljóðaði upp á tíu þúsund pappírsrúllur og Kristján skrifaði upphafsstafi sína neðst til hægri og rétti síðan stúlkunni reikninginn aftur. Bros lifnaði í munnviki og sem snöggvast gleymdi Kristján trénu og forstjóranum. Honum sýndist brjóst stúlkunnar titra innan í peysunni og augun kalla á sig í gegnum hávaðann, sem barst framan úr sal. Hann langaði að faðma þessa stúlku og gleyma sér andartak. En svo rankaði hann við sér. Dauðans vitleysa. Þessar hugrenningar voru úr lausu lofti gripnar, allt var gagnsætt, veggirnir, húsið og jafnvel fólkið sjálft. Og stúlkan var farin og Kristján fór aftur að horfa út um gluggann, horfði á tréð í portinu, þar sem það teygði laufgaðar greinar í áttina til hans, einn stór faðmur, titrandi eins og brjóst stúlkunnar. En svo var bankað á dyrnar, enn eitt kvabbið. Það var Margrét, gjaldkeri hjá fyrirtækinu. „Viltu vera svo góður að skrifa uppá þessa peningabeiðni?" sagði hún. Aftur setti hann upp- hafsstafi sína neðst til hægri, vissi naumast uppá hvað hann var að skrifa, vissi bara að þetta var grænn, ílangur miði, þess háttar sem komið var með til hans mörgum sinnum á dag. Upphæðin hefði alveg eins getað verið hundrað milljónir. Það breytti engu, bara skrifa nafnið sitt, segja já, aldrei snúa þversum. Hann fékk Margréti beiðnina aftur. „Takk fyrir," sagði hún og brosti. Alltaf þetta sama „takk fyrir," og svo bros. Þó að hann hefði rekið rýting í bakið á henni, hefði hún ekki látið standa á brosinu og svo „takk fyrir." Klukkan var nú að verða tíu og um ellefuleytið var von á kranabílnum. Kristján fór nú í alvöru að hugsa um, hvernig hann gæti snúið sér f þessu. „Þú lætur ekki traðka á þér," hafði konan sagt þegar hann fór að heiman í morgun, „bara alls ekki." „En atvinnan?" hafði hann sagt. „Þú getur alltaf fengið þér aðra vinnu," hafði hún sagt. Það vantaði ekki að hún stæði með honum, það hafði hún ávallt gert. En að skipta um vinnu eftir tuttugu og fimm ára starf hjá sama fyrirtækinu, það er hægara sagt en gert. í fyrstu datt honum í hug að fara til forstjórans og segja honum eins og var, að hann treysti sér ekki SKÓGRÆKTARRITIÐ 2006 99
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.