Golf á Íslandi - 01.12.2008, Síða 8
1 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Íslands-„Ryder“
og kreppugolf
R I T S TJ Ó R A P I S T I L L Páll Ketilsson
8
Eftir frábæra golftíð sem reyndar fjaraði út í september annað árið í röð
vegna leiðinlegs veðurs kom Íslandskreppan í byrjun október og nú
spyrja kylfingar; hvað gerir kreppan við golfið á Íslandi?
Aðalfundir hafa verið haldnir í mörgum klúbbum og flestum þeirra stóru.
Nokkrir þeirra hafa fengið kreppuna í andlitið vegna skuldsetningar. Á
formannafundi var rætt um að samdráttur á næsta ári í rekstri klúbbanna
verði að minnsta kosti 10% og þó svo enginn viti neitt um þróun mála
næstu vikur og mánuði þá má telja það gott ef þessi tala verður ekki hærri.
Án þess að vera með of mikla svartsýni er ekki ólíklegt að niðursveiflan
verði meiri. Flestir klúbbarnir bjóða sama árgjald og 2008 og einhverjir
hætta að taka inntökugjald sem reyndar einungis stóru klúbbarnir hafa
gert. Þessi samdráttur mun nokkuð örugglega hafa áhrif á afreksstarf sem
margir stóru klúbbanna hafa lagt verulega peninga í en einnig aðrar fram
kvæmdir. Sama sagan verður hjá GSÍ sem mun skera afreksstarf verulega
niður.
Þrátt fyrir þessa skítakreppu þá myndast tækifæri. Á fundi mótanefndar á
formannafundi GSÍ voru mótamálin rædd og sitt sýnist auðvitað hverjum.
Undirritaður kom með tillögu að mótaröðin yrði skoðuð með því að þeir
kylfingar sem hana stundi sjái ávinning í því að sækja hana, t.d. með því að
þriðja keppnisdegi yrði bætt við á föstudegi og þá leikin svokölluð Pro-am
keppni, þar sem okkar bestu kylfingar léku með hinum venjulegu kylfing
um. Allir bestu kylfingarnir léku 54 holur en niðurskurður við 36 holur. Þeir
bestu myndu klára á sunnudegi. Í sumar voru KB mótin flest 36 holur sem
keppendum sjálfum fannst of lítið. Síðan yrði endað með „Ryderkeppni“
þar sem 24 kylfingar í tveimur liðum reyndu með sér. Ryderinn milli USA og
Evrópu er orðið eitt vinsælasta íþróttamót í heimi og nú þegar ljóst er að
afreksmenn okkar munu ekki sækja nema brot af þeim mótum sem þeir
hafa gert undanfarin ár þurfum við að gera eitthvað nýtt og spennandi.
Það er ekki ólíklegt að hægt sé að setja upp svona mót þar sem t.d. 16 efstu
karlarnir, 6 konur og 2 unglingar ynnu sér þátttökurétt í Íslands-Rydern
um. Við myndum örugglega geta útbúið skemmtilega umgjörð með þátt
töku fyrirtækja, GSÍ og klúbbanna og búa til alvöru „ívent“ á Íslandi sem
væri lokamót sumarsins með bestu kylfingum Íslands. Við þyrftum að setja
klúbba saman í hvort lið, t.d. landsbyggðin á móti Reykjavíkursvæðinu.
Væri ekki gaman að sjá Helenu Árnadóttur og Heiðar Davíð saman í fjór
menningi gegn Erni Ævari og Ástu Birnu? Björgvin Sigurbergs eða Hlyn
Geir í tvímenningi á móti Ólafi Birni Loftssyni? Við getum leikið okkur með
það hvernig við stillum upp liðunum sem bæði fengju fyrirliða. GR á t.d. 15
af 30 efstu á stigalista karla 2008 og fjórðung efstu í kvennaflokki þar sem
GK er reyndar stærri. Við myndum t.d. setja Odd og Nesið með GR á móti
rest eða hvað? GKj, GK, GKG,GS, GL og aðrir klúbbar á landsbyggðinni á
móti Reykjavík/Kópavogi/Garðabæ?
Mótanefnd hefur falið undirrituðum að skoða hvernig við getum gert
Íslands-Ryder og ef vel gengur getum við kannski sett mót á í sumar.
Væri það ekki gaman? „Eigum við að ræða það eitthvað...“ segir vinsæll
frasi úr Dagvaktinni. Er það ekki málið. Ræðum þetta og gerum þetta.
Um leið og við hjá Golf á Íslandi sendum ykkur lesendum öllum okkar bestu
jóla- og nýársóskir viljum við þakka kærlega fyrir skemmtilegt golfár.
Páll Ketilsson,
pket@vf.is