Golf á Íslandi - 01.12.2008, Side 38
38 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Afar góðmennt var í kvöldverði sem SÍGÍ efndi
til að lokinni haustráðstefnu samtakanna laugar-
dagskvöldið 25. október sl. í klúbbhúsi Golfklúbbs
Reykjavíkur í Grafarholti. Nýttu samtökin tækifærið
og heiðruðu þrjá heiðursmenn, sem komið hafa við
sögu SÍGÍ frá því félagið var stofnað fyrir 13 árum.
Þeir voru Kári Elíasson, Hannes Þorsteinsson og Mar-
geir Vilhjálmsson.
Kári var einn af stofnendum SÍGÍ og enn fremur
fyrsti formaður samtakanna. Hannes var einnig
meðal stofnenda samtakanna og lykilmaður í stofn-
un þeirra. Hann hefur um árabil unnið að framþró-
un og bætingu golfvalla á Íslandi.
Margeir lét af störfum sem formaður SÍGÍ á þessu
ári eftir að hafa gegnt formennsku í heil 11 ár.
Hann hefur setið lengst allra formanna félagsins.
Vildi SÍGÍ þakka þessum þremur herramönnum fyr-
ir mjög óeigingjarnt starf, eins og segir í samþykkt
félagsins. Var þeim því afhent Heiðursviðurkenning
SÍGÍ og eru þeir vel að henni komnir.
SÍGÍ heiðrar þrjá frumkvöðla
Samtök íslenskra íþrótta- og golfvallastarfs-
manna eru samtök sem stuðla að fagmennsku
hjá félagsmönnum sínum og sér þeim fyrir sem
bestum upplýsingum til að auðvelda þeim starf
sitt á golf- og íþróttavöllum á Íslandi.
Markmið SÍGÍ eru að viðhalda og bæta gæði
golf- og íþróttavalla hérlendis.
SÍGÍ mun standa fyrir fræðslufundum, sýning-
um, golfmótum og heimsóknum jafnt hérlend-
is sem erlendis.
Menntun og fagmennska er höfð í hávegi hjá
samtökunum og áhersla er á miðlun upplýsinga
milli félagsmanna. SÍGÍ mun aðstoða félags-
menn til að sækja og nálgast nám í þeirra fagi
og er í boði jafnt hérlendis sem erlendis.
Samtökin kappkosta að halda úti vefsíðu með
upplýsingum SÍGÍ og vistunar á aðsendu efni
sem nýtist félagsmönnum og verður aðgengi-
legt á læstum hluta vefsíðunnar.
SÍGÍ munu standa fyrir sýningu á vélum og vör-
um til viðhalds á golf– og íþróttavöllum annað
hvert ár í þriðju viku október. Aðildarfélögum
verður boðin þátttaka í sýningum eftir stöðu
þeirra innan samtakanna. Sýningin er opin fyrir
hinn almenna félaga innan samtakanna án end-
urgjalds.
SÍGÍ leitast við að styrkja og efla samband sitt
við önnur samtök erlendis og taka þátt í fund-
um og ráðstefnum sem haldin eru af þeim og
standa fyrir hópferðum félagsmanna á sýningar
erlendis.
Umhverfissjónarmið skulu ávallt vera í heiðri
höfð hjá samtökunum. Stjórn SÍGÍ mun fylgjast
með og upplýsa félagsmenn um umhverfisvit-
und og góða umgengni um náttúruna. Sam-
tökin hlutast til og taka þátt í rannsóknum og
tilraunum sem gerðar eru á golf- og íþróttavöll-
um hérlendis.
HVAÐ ER SÍGÍ?
Brynjar Sæmundsson og Tryggvi Ö. Gunnarsson.
Ólafur Þór Ágústsson, formaður SÍGÍ, Hannes Þorsteinsson, Margeir Vilhjálmsson,
Kári Elíasson fyrsti formaður SÍGÍ og Jón Ásgeir Eyjólfsson forseti GSÍ.
Fh. Ellert Jón Þórarinsson, Birkir Már Birgisson, Halldór Leifsson, Björn Viðar Ólason, Steinn
Ólafsson, Óskar Kristinsson, Brynjar Sæmundsson, Einar G. Jónasson og Páll Ríkharðsson.
Hannes Þorsteinsson, Bruce Jamieson, Margeir Vilhjálmsson og Charles Gregory frá Toro.