Golf á Íslandi - 01.12.2008, Qupperneq 54
54 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
G O L F viðtalið - Staffan Johannsson:
golfsins á Íslandi, en það er sjálfsagt alltaf hægt að
gera betur. Þegar ég kom hingað fyrst var mjög lítil
starfsemi hjá Golfsambandinu og mótaröðin var ekki
í háum gæðaflokki. Þá voru engar skipulagðar æfing-
ar hjá landsliðinu og starfið mitt var meira og minna í
kringum landsliðsferðir erlendis. Þar gat ég aðstoðað
landsliðsmenn við leikskipulag og kennt þeim meiri
aga á golfvellinum, en ekki mikið meira. Ég hefði
viljað eyða meiri tíma hér á Íslandi með afrekskylfing-
um á fyrstu árunum, en það hefur breyst til batnaðar
síðari ár. Þetta var frekar laust í reipunum fyrstu árin,
en landsliðsmálin hafa verið tekin fastari tökum. Á
þessum tíma hafa Íslendingar eignast keppendur
á Evrópumótaröð karla og kvenna. Birgir Leifur og
Ólöf María Jónsdóttir hafa rutt brautina og sýnt að
þetta er vegur sem er fær fyrir unga íslenska kylfinga.
Vonandi segir sagan að ég hafi skilað einhverju sem
hægt er að byggja á til framtíðar. Þetta er búinn að
vera skemmtilegur tími og ég kveð með söknuði því
ég kem alltaf til með að líta á Ísland sem mitt annað
heimaland. Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í
skauti sér, en kannski kemur sá tími að krafta minna
verði óskað aftur hér á Íslandi og þá mun ég væntan-
lega ekki skorast undan.“
Hver er staða íslensks golfs, eru einhverjir efnilegir að
koma upp?
„Ég mundi segja að staðan væri góð. Við höfum
verið að sjá fleiri og fleiri unga og efnilega kylfinga
stíga fram á sviðið. Ef þeir leggja hart að sér á næstu
árum er aldrei að vita nema að Íslendingar eigi eftir
að eignast fleiri keppendur á Evrópumótaröðinni.
Starfið í kringum afrekskylfingana hefur líka batnað
mikið. Það var mikið framfaraspor fyrir tveimur árum
er við breyttum fyrirkomulagi þjálfunarinnar sem
fólst í því að stofna Team Iceland, sem er skipað bestu
kylfingum landsins, bæði áhugamönnum og atvinnu-
mönnum. Í þessum hópi er kjarninn að framtíðar
afreksfólki Íslands sem hefur það markmið að búa til
afrekskylfinga á alþjóða mælikvarða.
Bjart framundan í kvennagolfinu
Það eru margir efnilegir kylfingar á Íslandi, en sam-
keppnin er að sama skapi ekki mikil.
Eins og staðan er í dag held ég að kvennagolfið eigi
meiri framtíð fyrir sér. Það eru margar ungar stúlkur
sem gætu náð langt. Ég nefni Valdísi Þóru Jónsdóttur,
Eygló Myrru Óskarsdóttur og Guðrúnu Brá Björgvins-
dóttur sem dæmi um það. Þetta eru allt stelpur sem
gætu komist inn á Evrópumótaröðina með réttri
þjálfun. Það er líka auðveldara fyrir þær að komast
inn á erlenda mótaröð en hjá strákunum þar sem
samkeppnin er mun harðari.
Það eru líka efnilegir drengir á Íslandi og nefni ég sem
dæmi um það, þá Axel Bóasson, Pétur Frey Pétursson
og Axel Ásgeirsson, sem verða allir 19 ára næsta ári.
Þessir strákar hafa allir hæfileikana til að ná langt,
en það eru að fara í hönd mjög mikilvægir tímar hjá
Eins og staðan er í dag held ég
kvennagolfið eigi meiri fram-
tíð fyrir sér. Það eru margar
ungar stúlkur sem gætu náð
langt. Ég nefni Valdísi Þóru
Jónsdóttur, Eygló Myrru Ósk-
arsdóttir og Guðrún Brá Björg-
vinsdóttur sem dæmi um það.
Þetta eru allt stelpur sem gætu
komist inn á Evrópumótaröð-
ina með réttri þjálfun.
Pétur Freyr, Guðrún Brá (t.v.) Eygló Myrra og Valdís Þóra að ofan.