Golf á Íslandi - 01.12.2008, Síða 57
57GOLF Á ÍSLANDI • DESEMBER 2008
...Nú tekur við nýr kafli hjá
mér í Finnlandi og það er
spennandi og ögrandi verk-
efni. Ég gerði tveggja ára
samning við finnska samband-
ið og markmiðið er að efla
afrekskylfinga þar í landi, gera
þá betri en þeir eru í dag...
var ákaflega duglegur að æfa sig og varð ekki góður
fyrr en 16 eða 17 ára. Hann er gott dæmi hvað hægt
er að gera. Það eru ekki endilega kylfingar sem hafa
bestu aðstæður til æfinga sem slá í gegn.
Ég mundi segja að erfiðasti tími til æfinga á Íslandi
væri á vorin, apríl og maí, þegar kylfingar vilja kom-
ast út til að æfa sig, orðnir þreyttir á að æfa inni.
Þá eru aðstæður einfaldlega ekki orðnar nægilega
góðar til æfinga utanhúss. Þessi tími er einnig erfiður
hjá unglingum því þeir eru yfirleitt í prófum á þess-
um tíma og íslenskir golfkennarar fara þá gjarnan til
útlanda. Ég er á því að það þurfi að nýta vorið betur
til markvissra æfinga, missa ekki niður dampinn, og
koma meira tilbúinn inn á mótaröðina yfir sumarið.“
Hvernig kanntu við Íslendinga?
„Það tók mig smá tíma að kynnast Íslendingum, en
núna finnst mér afskaplega heimilislegt að koma
hingað. Ég hef eignast hér marga góða vini og von-
andi tekst mér að halda sambandi við þá í framtíð-
inni. Ég ætla ekki að klippa á línuna til Íslands þó svo
að ég hafi skipt um starfsvettvang. Ég er ákveðinn í
að koma til Íslands strax næsta sumar og spila golf.“
Hver er að þínu mati besti golfvöllur Íslands?
„Skemmtilegasti völlurinn og sá völlur sem ég myndi
oftast vilja spila er í Vestmannaeyjum. Ef ég kem
hingað til lands með erlenda kylfinga fer ég með þá
til Eyja. Það er alveg mögnuð upplifun að spila þar,
öðruvísi en allt annað. Ef ég ætti að taka út einhvern
einn völl sem besta keppnisvöll landsins, myndi ég
velja Garðavöll á Akranesi. Hann er góður keppnisvöll-
ur fyrir betri kylfinga og þar hafa undanfarin ár verið
bestu flatirnar. Hann getur refsað og hann getur
gefið. Þá er Grafarholtið einnig góður keppnisvöllur
þegar hann er í sínu besta formi.“
Staffan segir að hann hafi farið í mjög skemmtilega
ferð um Ísland sl. sumar þar sem hann fór hringferð
um landið og spilaði mjög marga velli sem hann
hafði aldrei komið á áður. Hann vill hvetja íslenska
kylfinga til að spila meira á minni völlum úti landi.
Það væri öðruvísi stemmning í því.
„Ég fór hringferð austur um landið síðasta sumar
með nokkrum sænskum félögum mínum og Ragnari
Ólafssyni. Það var mikil upplifun og margir vellir
sem komu mér verulega á óvart. Það eru ekki alltaf
stærstu og flottustu vellirnir sem gefa manni mest í
að upplifa skemmtilegt golf. Það er fyrst og fremst
staðurinn og fólkið sem maður spilar með sem
skipta mestu máli í því sambandi. Völlurinn á Sauð-
árkróki kom mér mjög á óvart. Hann er frábær og
ég gæti leikið þar marga hringi. Við lékum tvo velli
á dag í ferðinni. Það tók okkur rétt rúma þrjá tíma
að leika 18 holur á hverjum velli á meðan við erum
kannski 5 - 6 tíma að spila stóru vellina í Reykjavík.
Skemmtilegasti völlurinn á Íslandi að mati Staffans: Vestmannaeyjar.
Völlurinn á Sauðárkróki kom Staffan á óvart. Honum þótti hann frábær.