Golf á Íslandi - 01.12.2008, Síða 70
70 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Druids Glen:
Um 40 mínútur frá flugvellinum í Dublin er Druids
Glen völlurinn. Þetta er skógarvöllur í fallegu um-
hverfi, með mikið af blómum, trjám og vatni. Mjög
spennandi loka 12 holur en mér fannst fyrstu sex
ekkert spes. Að vísu voru blómin sem skreyta þessar
holur ekki komin sem er frekar óvenjulegt á þessum
árstíma en það getur breytt miklu varðandi útlit
á þessum fyrstu holum. Mun alltaf mæla með að
menn haldi sér við links golf á Írlandi! Bara mín
skoðun. Mjög flott hótel er á staðnum þannig að þeir
sem vilja smá lúxus og afslöppun verða ekki fyrir
vonbrigðum.
Portmarnock Links
Nýr völlur í Portmarnock sem var hannaður árið 1996
af Þjóðverjanum Bernhard Langer. Hann er ekki nátt-
úrulegur og jörðin hefur verið hreyfð til að búa hann
til en maður finnur varla fyrir þessu. Mjög góður
links völlur, engar heimsklassa holur en þrælspenn-
G O L F V E L L I R 15 golfvellir á Írlandi skoðaðir:
andi völlur engu að síður og þá sérstaklega frá 7.
braut. Klúbbhúsið virkar svolítið gamalt en þar vant-
ar alvöru klúbbstemmingu. Fínt hótel er á staðnum.
Völlurinn er 10 mínútur frá Dublin flugvellinum.
The Island
Um 30 mínútur frá Portmarnock er The Island Golf
Club. Völlurinn er í miðju stórra sandhóla og þar eru
mikið af mjög flottum golfholum. Martin Hawtree,
golfvallararkitekt, hefur nýlega klárað verkefni þar
en þá voru nokkrar brautir lengdar eða þeim breytt.
Flatirnar voru ekki jafn góðar og á öðrum völlum sem
við spiluðum á svæðinu, en þetta er alltaf lykilatriði.
Ein fáránleg braut, sú 14., sem er par 4 er lendingar-
svæðið varla 20 metra breitt! Frábært umhverfi og
skemmtilegir meðlimir.
Portmarnock Old
Þessi var í uppáhaldi hjá okkur. Týpískur gamaldags
linksvöllur, frekar flatur og sanngjarn. Maður sér
alltaf fyrir framan sig, engin blind högg. Frábær
völlur fyrir lágforgjafakylfinga. Klúbbhúsið er glæsi-
legt, gamaldags útlítandi að innan og er drauma-
staður fyrir einn bjór eftir hringinn. Það eru nokkrar
heimsklassa holur en kaflinn frá 12. til 15. holu var
sérstaklega sterkur, 14. braut gæti verið ein af þeim
bestu á Írlandi. Green fee er ekki ódýrt, um 190 evrur,
en alveg þess virði!!
Royal Dublin
Um 15-20 mínútur frá Portmarnock er Royal Dublin,
annar týpiskur links völlur sem var með Irish Amate-
ur Championships á þessu ári, sem sannar gæðin.
Martin Hawtree hefur verið að endurnýja völlinn og
það verkefni hans er að skila sér mjög vel. Hér er um
out and back layout að ræða, langur, flatur völlur eða
um 7200 yardar á keppnisteigum, sem við spiluðum
á. Hann er eini „Royal“ völlur Írlands. Mjög krefjandi,
en ég myndi alltaf borga 15-20 evrur í viðbót og spila
á Portmarnock Old.
Ballybunion er einn af þessum stóru, og einn af þessum sem maður verður að spila.
Sjáið þetta umhverfi á Waterwille vellinum.