Golf á Íslandi - 01.12.2008, Qupperneq 72
72 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
Waterville
Waterville er langt frá öllu í Kerry á suðvesturströnd
Írlands. Það er kannski ein ástæðan fyrir því að klúbb-
urinn hefur ekki fengið að halda mörg stórmót, því
völlurinn er stórkostlegur. Við lentum í að spila hann
í mjög miklum vindi en hann er um 7000 yardar,
sem sagt langur og erfiður. Hann er frekar flatur
og er staðsettur í yndislegu umhverfi. Einn af okkar
uppáhalds völlum!
Old Head
Old Head völlurinn er algjör „must play“ völlur.
Hann liggur á nesi stutt frá Cork í Suður Írlandi, um
200 metra fyrir ofan sjávarmaál á stórum klettum.
Green fee kostar rétt undir 300 evrum en það er vel
þess virði að spara aðeins annars staðar og að spila
hann einu sinni í ævinni. Brautir sem liggja meðfram
klettunum eru einstakar, þá sérstaklega sú 12. þar
sem taka þarf teighöggið yfir sjó. Brautirnar sem ekki
liggja á ströndinni eru ekki jafn spennandi. En engu
að síður, völlur sem allir strandvallaáhagendum
verða að spila, allavega einu sinni!
Ballybunion Old og Cashen
Ballybunion er vel þekktur völlur sem hefur alltaf
verið með þeim bestu í heimi. Þetta er stór klúbbur
og Old völlurinn er einnig stór. Vindurinn er alltaf til
staðar, eins og reyndar alls staðar á Írlandi og stund-
um er varla hægt að standa á teig! Sandöldurnar eru
stórar og síðustu 12 holurnar eru rétt þar inn á milli.
Ballybunion er völlur sem maður þarf að spila!!
Cashen völlurinn olli hins vegar vonbrigðum. Enda á
að gera hann aftur frá A til Ö! Verður gaman að sjá
hann tilbúinn eftir nokkur ár. Landið undir vellinum
er alveg frábært, jafnvel betra en á Old course þar
sem sandöldurnar eru enn stærri. Þó að því miður
hafi Trent Jones ekki tekist að búa til heimsklassa
linksvöll!
Lahinch Old og Castle
Castle völlurinn er fínn æfingavöllur fyrir hring á Old
course, ekki meira...
Old course á Lahinch er einn skemmtilegasti völlur
sem ég þekki! Ballybunion er sennilega betri völlur
en Lahinch skemmtilegri. Flatirnar þar eru alveg ein-
stakar, aldrei flatar. 5. brautin heitir Klondyke, hún er
par 5 en innáhöggið er blint! Sú 6. er par 3, heitir Dell
en flötin er falin á bak við stóra sandöldu. Ógleyman-
legur völlur!
County Louth
Um 100 kílometra fyrir norðan Dublin er County
Louth völlurinn, en þar var Irish Open spilað árið
2004. Þetta er flatur links völlur, mjög náttúrulegur
með mjög góðum flötum. Par 4 holur eru langar,
oftast yfir 400 metrar. Vel þess virði að keyra þangað
frá Dublin.
Royal County Down
Spilaði þar í þriðja skipti nú í vor, þetta er uppáhalds
völlurinn minn! Fyrri 9 holurnar hafa oft verið sagðar
sumar af þeim sterkustu í heimi. Völlurinn er þó gam-
aldags links með blindhöggum frá teig á mörgum
brautum. Hentar kannski ekki fyrir alla! Klúbbhúsið
hefur nú verið endurnýjað að fullu og er eitt það
glæsilegasta sem til er. RCD völlurinn er í borginni
Newcastle í Norður Írlandi, um 5 klst frá Belfast og 2
klst. frá Dublin í bíl.
Doonbeg
Doonbeg er nýlegur völlur á vestur ströndinni
hannaður af Greg Norman sem opnaði árið 2002.
Landið er alveg magnað en því miður var ekki hægt
að nýta alla möguleika sem það býður upp á vegna
umhvefisvandamála (sandöldur eru varla notaðar,
völlurinn liggur í kring um þær). Ég var að spila þar
nú í þriðja skipti en mitt álit fer heldur versnandi í
hvert skipti. Þar eru 4 heimsklassa brautir (1., 13., 14.,
15.) en hinar eru ekki nógu góðar þegar maður þarf
að borga yfir 200 evrur fyrir hringinn. Svo er búið að
byggja kastala sem klúbbhús, sem hefur ekkert að
gera þarna! Það má þó segja um þjónustuna að hún
er fyrsta klassa.
Tralee
Einfaldari völlur en hinir á þessu svæði, hentar fólki
í öllum forgjafaflokkum. Staðsetningin er frábær.
Völlurinn var hannaður af Arnold Palmer og er mjög
skemmtilegur, sérstaklega seinni 9 holurnar sem eru
staðsettar á sandhólum. Myndin „Ryan’s daughter“
var tekin á ströndinni sem er fyrir neðan völlinn, hvít-
ur sandur og turquoise blár sjór: stórkostlegt!
Doonbeg er alveg magnaður völlur á vesturströndinni, hannaður af Greg Norman.
Það er mikil upplifun að leika Ballybunion með Atlantshafið í stóru hlutverki
Á Tralee „með“ Arnold Palmer.