Golf á Íslandi - 01.12.2008, Page 78

Golf á Íslandi - 01.12.2008, Page 78
78 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is G O L F ferðir mjög fjölbreyttur og skemmtilegur. Það var eitthvað við þennan stað. Nýtt hótel við hlið golfvallarins opnaði 2001 og undanfarin ár hefur Islantilla verið lang vinsælasti áfangastaðurinn. Margir Íslendingar fara þangað á hverju ári og vilja ekkert annað og hjón sem ég þekki hafa farið 15 sinnum. Islantilla var fyrsti staðurinn sem ég bauð þar sem allt var innifalið, matur, ferðir og ótakmarkað golf. Þetta hitti í mark og við erum enn að bjóða ferðir þangað, enda nýtur staðurinn vaxandi vinsælda.“ „Þegar ég skoða hótel og velli erlendis þá hefur andrúmsloftið mikið að segja. Ég hef skoðað mörg lúxus fimm stjörnu hótel, sem hafa ekki rétta and- rúmsloftið fyrir Íslendinga. Svo heimsæki ég kannski þriggja stjörnu hótel og þar finnur maður annað og betra andrúmsloft og líður miklu betur. Ég tel mig vita hvað Íslendingar vilja og þess vegna hefur þetta gengið svona vel. Ég hef aldrei selt áfangastað sem ég hef ekki skoðað áður. Það er algjör grundvallar- regla hjá mér að skoða alla staði sem ég ætla að setja í sölu með tilliti til aðstæðna hótels, golfvallar og þjónustu. Ég verð að vita hvað ég er að selja fólki, ég sendi ekki fólk út í óvissuna. Sem dæmi fór ég að skoða Indland, Kína, Kenya og Malasíu áður en ég fór með hópa í árlegar sérferðir okkar sem eru venjulega í febrúar mánuði.“ Verður erfiðara að selja Íslendingum golfferðir í vor eftir bankakreppuna? „Já, það má alveg gera ráð fyrir einhverjum sam- drætti. Ég held þó að íslenskir kylfingar þurfi komast til að spila golf erlendis á vorin og haustin. Við hættum ekki að spila golf þó svo að það harðni á dalnum. Við eum bjartsýn því nú þegar höfum við fengið margar fyrirspurnir um vorferðirnar. Farþegar okkar þekkja þjónustu okkar og þökkum við það traust sem þeir hafa sýnt okkur í gegnum árin með að treysta okkur fyrir skipulagningu golferðarinnar“ sagði Peter Salmon. Hin nýja golfdeild ferðaskrifstofunnar VITA verður með golfferðir á fimm staði í vor og eru þeir allir á Spáni: Islantilla, El Rompido, Matalascanas, La Quinta og nýr staður sem heitir Montecastillo. Flogið verður til Sevilla og er fyrsta brottför páskaferð 4. apríl. Fararstjórar í golfferðum okkar undanfarin ár eru: Kjartan L. Pálsson, Sigurður Hafsteinsson, Einar Lyng Margrét Óskarsdóttir, Peter Salmon og Signhild Borgþórsdóttir á skrifstofu VITA Hefur spilað 250 golfvelli í 34 löndum! Peter Salmon hefur að öllum líkindum spilað golf í fleiri löndum en flestir aðrir íslenskir kylfingar. Peter, sem er 51 árs, hefur spilað golf á um 250 völlum í 34 löndum. Hann segir að Robert Trent Jones völlurinn í Spring City í Kunming í Kína sé besti og flottasti völlur sem hann hafi spilað til þessa. Peter segist í starfi sínu ekki aðeins hafa fengið að spila marga frábæra golfvelli, heldur hef- ur hann einnig fengið tilsögn í íþróttinni frá Seve Ballesterons og Jose Maria Olazabál. Löndin sem Peter hefur spilað golf í, eru: Ástralía, Belgía, Kanada, Kína, Kosta Ríka, Danmörk, Egypta- land, England, Finnland, Frakkland, Ungverjaland, Hong Kong, Holland, Ísland, Indland, Indónesía, Ír- land, Japan, Kenýa, Lúxemborg, Malasía, Marokkó, Nýja-Sjáland, Noregur, Portúgal, Skotland, Spánn, Singapore, Suður-Afríka, Taíland, Tyrkland, Banda- ríkin og Wales. „Ég tel mig vera mjög heppinn að hafa fengið tækifæri til að spila golf í öllum þessum löndum. Það munu væntanlega fleiri lönd bætast við á næstunni, ég er ekki hættur. Þegar ég hugsa til baka sé ég mest eftir því að hafa ekki keypt mér minjagrip frá þessum frábæru völlum,“ sagði Pet- er sem byrjaði að æfa golf sjö ára gamall í Hong Kong, en þar er hann fæddur. „Ef ég ætti að velja þrjá bestu vellina sem ég hef spilað yrði röðin þessi: 1) Robert Trent Jones völl- urinn í Spring City í Kunming í Kína, 2) Outeniqua völlurinn í Fancourt í Suður-Afríku og 3) Rye Golf club, Sussex í Englandi, en það er minn gamli heimavöllur. Hefur sent Íslendinga í golfferðir til 14 landa Peter Salmon hefur selt samtals um 20 þúsund einstaklingum golfferðir frá því hann hóf störf við að skipuleggja golfferðir hjá Úrval-Útsýn. Starfsfer- ill hans spannar 16 ár í bransanum. Hér fyrir neð- an má sjá þau 14 lönd sem Peter og samstarfsfólk hans hafa verið með skipulagðar hópferðir til: England Skotland Írland Spánn Portúgal S-Afríka Taíland Indland Kenýa Malasía Brunei Kína Bandaríkin Tyrkland Hjaltason, Ingi Rúnar Gíslason, Ólafur H. Jóhannes- son, Sigurpáll Geir Sveinsson, Örn Ævar Hjartarson, Helga Möller og Þórdís Geirsdóttir. Ingi Rúnar Gísla- son og Ólafur H. Jóhannesson hafa veitt golfskólanum forstöðu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.