Golf á Íslandi - 01.12.2008, Blaðsíða 91
91GOLF Á ÍSLANDI • DESEMBER 2008
að komast í golf. Það gerir það allavega ekki dag eftir
dag. Fólk vill geta stundað golfið eftir vinnu og þurfa
ekki að keyra langt í að sækja heimavöllinn.“
Hvernig finnst þér fyrirkomulag að geta pantað rás-
tíma á Netinu?
„Það er í sjálfu sér ágætt ef það væri gott kerfi. Það er
ekki í lagi að einhver einn geti bókað inn margar kenni-
tölur í einu og taki þannig frá bestu rástímana hverju
sinni. Það er til betra kerfi. Eins og þar sem ég hef verið
að spila út í Flórída er hægt að panta tíma viku fram
í tímann. Maður getur óskað eftir ákveðnum rástíma,
en það er ekki endilega sjálfgefið að maður fái þann
tíma. Ef ég er búinn að fá þennan tíma oft áður, fæ ég
hann ekki. Tölvan reiknar það út sjálf hvernig raða eigi
niður miðað við hvernig menn hafa pantað áður. Það
er staðreynd að þetta kerfi hér heima er misnotað. Það
eru mjög oft sömu mennirnir sem fá bestu tímana.
Svo verður að taka hart á því þegar menn mæta ekki
í rástíma. Ég var oft vitni af því í sumar, að það voru
kannski allir tímar fullir, en samt voru 2–3 í sumum
hollum úti á velli.
Nú ert þú farinn að leika á öldungamótaröðinni er
það eitthvað sem þú ætlar að leggja áherslu á í fram-
tíðinni?
„Já, ég var í fyrsta sinn gjaldgengur í öldungamótaröð-
ina á þessu ári. Ég vann mér m.a. inn sæti í landsliði
öldunga en gaf ekki kost á mér í landsliðsferð vegna
þess að ég vildi frekar taka þátt í Íslandsmótinu í golfi
sem fram fór í Vestmanneyjum á sama tíma. Ég verð
væntanlega með í LEK-mótunum á næsta ári.“
Hvað með öldungamót Evrópu, er ekki spennandi að
reyna að komast þanngað?
„Ég fór í úrtökumót fyrir Evrópumótaröð öldunga
2003, en komst ekki inn á mótaröðina. Ég var búinn að
spila vel þá um sumarið, en það dugar ekki að spila yfir
sumarið hér heima og taka síðan tveggja mánaða frí
og ætla sér síðan í úrtökumót. Svona eftir á að hyggja
hefði ég þurft að spila þessa tvo mánuði erlendis áður
en ég fór í mótið. Ég veit að það þýðir ekkert að ala
með sér þann draum að maður komist í gegn í þessu
móti. Það er alltof sterkt til þess enda aðeins átta efstu
sem komast inn á mótaröðina. Það getur hins vegar
alveg verið að ég fari í annað úrtökumót svona meira
mér til gamans. Þetta eru allt atvinnumenn í golfi með
mikla reynslu og eru miklu betri spilarar en við höfum
nokkru sinni verið.“
Hvað spilar þú oft í viku?
„Ekki nægilega oft, aðallega út af þeim aðstæðum sem
ég nefni hér áðan. Ég reyni alltaf að spila þegar það er
gott veður, eða þegar ég kemst að á GR-völlunum.“
Björgvin gekk í GR fyrst 1976 þó svo að hann hafi ekki
spilað fyrir kúbbinn nema tvö ár. GA er og hefur nær
alltaf verið hans aðalklúbbur. Þá hefur hann verið í GV,
en það kom til þegar vinur hans, Júlíus Hallgrímsson,
stakk upp á því að hann kæmi í GV til að spila í sveita-
keppninni. Í sumar keppti hann hins vegar aftur fyrir
GA m.a. í seitakeppni öldunga í Leirunni þar sem hann
fagnaði sigri eins og svo oft á öðrum vígstöðvum í
gegnum árin. Björgvin þekkir það vel að sigra, er mikill
keppnismaður og á erfitt með að sætta sig við tap.
„Sem dæmi um hve ólíkt þetta er þá
slæ ég um 30 metrum lengra af teig
en ég gerði þegar ég skoraði sem
best. Röffið var oft mun dýpra hér
áður fyrr. Sérstaklega eins og á
Akureyri, en þar var röffið slegið
svona tvisvar á sumri..“
Björgvin að ofan á Íslandsmótinu 1975 og á Akureyri síðar á neðri. Ragnar Ólafs að slá í röffinu.