Golf á Íslandi - 01.12.2008, Qupperneq 104
104 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
G O L F Á R I Ð 0 8 spurt & svarað
Náðir þú þínum markmiðum í golfinu sl. sumar?
„Já ég náði flest öllum markmiðum mínum, nema
kannski forgjöfinni.“
Hvað er eftirminnilegasta mótið, og hvers vegna?
„Eftirminnilegasta mótið er Íslandsmótið í höggleik
vegna þess að ég spilaði mitt besta golf þar.“
Hvert er eftirminnilegasta höggið í sumar, getur þú
lýst því?
„Eftirminnilegasta höggið er „eagle“ pútt sem ég átti
á 5. holu fyrsta daginn í Íslandsmótinu í höggleik.
Ég var fremst á flötinni og ég var ca. 20 metra frá
holunni og ég setti púttið niður.“
Hefur þú sett þér markmið fyrir næsta sumar, og
hver eru þau?
„Nei, ég hef ekki gert það. Ég fer þó í öll mót til þess
að vinna þau.“
Hver er að þínu mati efnilegasti kylfingur Íslands
2008?
„Það er Guðrún Brá Björgvinsdóttir.“
Náðir þú þínum markmiðum í golfinu sl. sumar?
„Nei, fannst ég spila lélega í sumar. Þetta var
stöðugt leiðinlegt golf, þar sem vantaði uppá að
detta inná einn-tvo frábæra hringi.“
Hvað er eftirminnilegasta mótið, og hvers vegna?
„Lokamótið á Kaupþingsmótinu sem fram fór á
Urriðavelli. Þar endaði ég í 2. sæti. Spilaði á besta
skorinu seinni daginn í vonda veðrinu 73 (+1).
Þessi árangur kom mér upp í 3. sætið á stigalista
Kaupþingsmótaraðarinnar, sem er það besta sem
ég hef náð hingað til.“
Hvert er eftirminnilegasta höggið í sumar, getur
þú lýst því?
„Eftirminnilegasta höggið var sigurpútt á 18. holu
á Akranesi í sveitakeppninni. Ég var að spila við
Birgi Guðjónsson (GR) í æsispennandi leik og við
strákarnir í GKG vorum nýbúnir að jafna í öllum
leikjum og ég var með 2ja metra pútt fyrir sigri,
upp í móti með smá sveig til vinstri, sem ég setti
svo í fyrir 3-2 sigri GKG í leik um bronsið.“
Hefur þú setti þér markmið fyrir næsta sumar,
og hver eru þau?
„Markmiðin eru að verða sterkari og liðugri
líkamlega. Verða stöðugari golfari með því að æfa
samkvæmt æfingarprógrammi og njóta þess að
spila golf.“
Hver er að þínu mati efnilegasti kylfingur Íslands
2008?
„Að mínu mati er það Ólafía Þórunn Kristinsdótt-
ir. Hún er með flottustu sveiflu sem ég hef séð
og með réttann persónuleika til þess að komast
alla leið.“
Markmiðin eru að
verða sterkari og
liðugri líkamlega
Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG:
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR:
„Náði flest öllum markmiðum mínum“
Náðir þú þínum markmiðum í golfinu sl. sumar?
„Já, og ég er rosalega þakklát fyrir það.“
Hvað er eftirminnilegasta mótið, og hvers vegna?
„Harder German. Vegna þess að þá spilaði ég besta
hring ævinnar og var þá í leiðinni líka að spila í fyrsta
skipti undir pari, -1. Svo vann ég líka pitch-keppnina
var 28 cm frá og endaði í 5. sæti í drive-keppni með
241 metra högg.“
Hvert er eftirminnilegasta höggið í sumar, getur þú
lýst því?
„Eftirminnilegasta holan var í Þýskalandi. Meðspilari
minn sló fyrst af teig og fór næstum holu í höggi en
boltinn rúllaði tvo metra frá. Þar á eftir sló
hin stelpan í hollinu, fór næstum líka holu í höggi og
sá bolti rúllaði einn og hálfan meter frá. Síðan kom að
mér, ég sló og fór líka næstum því holu í höggi nema sá
bolti endaði um 30 cm frá. Þetta var mjög eftirminni-
legt atvik. Það var líka frábær og jákvæð stemning í
hollinu. Enda spiluðum við allar vel þennan hring.“
Hefur þú setti þér markmið fyrir næsta sumar, og
hver eru þau?
„Já. Ég ætla að vinna sem flest mót. Vinna a.m.k einn
Íslandsmeistaratitil, helst fleiri. Ná forgjöfinni nálægt
1 og fá gott meðalskor.“
Hver er að þínu mati efnilegasti kylfingur Íslands
2008?
„Ég veit það ekki alveg, það eru svo margir efnilegir.
Kannski Haddi, Gummi eða Axel Bó.“
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR:
Spilaði besta hring ævinnar á
HARDER GERMAN