Golf á Íslandi - 01.12.2008, Qupperneq 124
124 GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
G O L F fréttir
Hagnaður GKG af daglegum rekstri nam tæplega 19
milljónum króna, en að frádregnum fjármagnsgjöld-
um og afskriftum var tap upp á rúmar 12 milljónir,
að því er fram kemur í árskýrslu klúbbsins sem lögð
var fram á aðalfundi GKG í lok nóvember. Rekstrar-
tekjur klúbbsins á starfsárinu námu rúmlega 134
milljónum króna. Heildarskuldir GKG eru rúmar 90
milljónir króna. Á fundinum var samþykkt að fullt ár-
gjald verði óbreytt frá síðasta ári og að inntökugjöld
verði felld niður tímabundið á því næsta.
Guðmundur Oddsson var endurkjörinn sem
formaður kúbbsins. Á fundinum var samþykkt að
fullt árgjald verði óbreytt frá síðasta ári og að inn-
tökugjöld verði felld niður tímabundið á því næsta.
Guðmundur sagði að nú væru ýmsar blikur á lofti,
sem örugglega muni breyta ýmsum áformum og
seinka þeim framtíðarplönum sem stjórn GKG hefur
verið að vinna að varðandi félags- og æfingaaðstöðu
klúbbsins.
Þá segir í skýrslu stjórnar að rekstur klúbbsins væri
erfiður og nauðsynlegt að skoða alla þætti hans frá
grunni og gæta verði mikils aðhalds til að endar
nái saman. „Við verðum að skera niður útgjöld eins
mikið og við mögulega getum og draga verulega úr
öllum framkvæmdum. Þá eru allir okkar tekjupóstar í
mikilli óvissu, en þar skiptir félagafjöldinn mestu. Við
lok þessa starfsárs eru félagar alls 1.569, en voru 1.591
við lok síðasta árs. Félagsgjöldin vega 60 - 65% af
heildartekjum klúbbsins og því skiptir miklu að halda
öllum sínum félögum. Það er alveg ljóst að á næsta
ári mun mjög reyna á félagsanda klúbbfélaga og
skora ég því á alla að bregðast skjótt við þegar leitað
verður eftir auknu sjálfboðastarfi á komandi sumri.
Við verðum að gera okkur ljóst, að ef við ætlum að
halda vellinum og raunar öllu starfinu í klúbbnum
í þokkalegu standi, þá verða félagsmenn að koma
meir til starfa en áður hefur verið.“
Þá kemur fram í skýrslunni að GKG hafi óskað eftir
því við mótanefnd GSÍ að halda Íslandsmótið í högg-
leik árið 2014 þegar klúbburinn heldur upp á 20 ára
afmæli sitt.
Stjórn GKG er þannig skipuð:
Guðmundur Oddsson, formaður
Jón Snorri Snorrason, varaformaður
Hjörleifur Hringsson, gjaldkeri
Bergþóra Sigmundsdóttir, ritari
Kristinn Jörundsson, meðstjórnandi
Gunnar Jónsson, meðstjórnandi
Símon Kristjánsson, meðstjórnandi
RÚMLEGA 12 MILLJÓNA
KRÓNA TAP Á REKSTRI GKG
Aðalfundur Golfklúbbsins Odds og Golfklúbbs
Oddfellow var haldinn í lok nóvember. Fundinn sátu
120 félagsmenn og var farið yfir skýrslu stjórnar
og reikninga síðasta árs sem voru síðan samþykkt
samhljóða. Síðan var farið yfir rekstraráætlun næsta
árs og félags- og vallagjöld fyrir árið 2009 samþykkt.
Félagsgjöld verða óbreytt á milli ára. Hagnaður
klúbbsins af daglegum rekstri var rúmar 27 milljónir
króna, en að frádregnum fjármagnsgjöldum og
afskriftum var tap upp á rúmar 10 milljónir. Ljóst er
að næsta ár verður þungt í rekstri vegna aðstæðna í
þjóðfélaginu. Félagsmenn í GO eru nú 1.396 talsins.
Páll Kristjánsson var endurkjörinn sem formaður
klúbbsins. Breytingar urðu á stjórn GO: Reynir Þórð-
arson og Óli Öder Magnússon komu inn í staðin fyrir
Hauk Örn Birgisson og Valdimar Olsen. Í stjórn GOF
komu Guðmundína Ragnarsdóttir, Reynir Þórðarson
og Þórður Ingason, fyrir Birgi Ottósson, Valdimar Ol-
sen og Sigríði Káradóttur. Var þeim öllum þakkað
góð störf.
Í skýrslu stjórnar kom fram að starfsárið hefði verið
mjög gott og enn og aftur stígandi í allri starfsemi.
Metaðsókn er á bæði Urriðavöll og Ljúfling en
klúbburinn tók einnig að sér rekstur Setbergsvallar
sem kom vel út. Árangur afreksfólks var einnig mjög
góður og félagsstarf í miklum blóma.
Undir önnur mál voru fyrirspurnir og umræður um
ýmis störf nefnda svo sem mótamál, afreksmál og
fleira. Vegna sérlegra góðrar mætingar og skemmti-
legrar umræðu er stefnt á að hafa opna félagsfundi
reglulega þar sem félögum gefst kostur á að koma
málefnum sínum á framfæri. Fundargerð aðalfundar
er að finna á heimasíðu GO.
Óbreytt félagsgjöld hjá GO
tap upp á rúmar 10 milljónir kr.