Golf á Íslandi - 01.10.2016, Blaðsíða 20
Fjórir erlendir atvinnukylfingar tóku þátt á Securitasmótinu á Eimskips
mótaröðinni sem fram fór á Grafarholtsvelli í ágúst. Þetta er í fyrsta sinn
sem erlendir kylfingar keppa á Eimskipsmótaröðinni en keppt var um
GR-bikarinn í fyrsta sinn á þessu móti. Ragnar Baldursson varaformaður GR
segir í samtali við Golf á Íslandi að tilraunin hafi heppnast mjög vel og í raun
vonum framar.
„Markmið okkar var að leikmönnum liði vel
í GR-bikarnum og upplifun þeirra væri sem
ánægjulegust. Hluti af því var að fá erlenda
leikmenn til leiks. Þessir leikmenn eru góðir
kylfingar og allir verið að leika á ProGolf
mótaröðinni sem Þórður Rafn Gissurarson
hefur leikið á undanfarin misseri. Allt
saman góðir drengir og atvinnumenn fram
í fingurgóma. Það var augljóst að íslensku
keppendurnir voru spenntir að fá tækifæri
að keppa við þá og markmiðinu var því
náð hvað þetta varðar,“ segir Ragnar en
GR-ingarnir Þórður Rafn og Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir aðstoðuðu við að fá erlendu
kylfingana til landsins.
„Upphaflega ætluðum við að fá tvo karla
og tvær konur erlendis frá í þetta mót. Því
miður var mikið um að vera í kvennagolfinu
í Evrópu á þessum tíma og þær konur sem
höfðu lýst yfir áhuga gátu ekki komið.
Niðustaðan var því að fá fjóra karla og það
var áhugi frá fleirum að koma. Mér sýnist að
það gæti orðið niðurstaðan að tveir til fjórir
leikmenn af hvoru kyni mæti til leiks í GR-
bikarinn árið 2017.“
Ragnar bætir því við að það sé mikilvægt
fyrir íslenska kylfinga að fá samanburð hvar
þeir standi með reglulegu millibili og GR-
bikarinn eigi að vera slíkt mót.
„Með breytingunum sem gerðar voru
á Eimskipsmótaröðinni á þessu ári fá
eingöngu allra bestu íslensku kylfingarnir
taka þátt í GR-bikarnum. Við stefnum á að
verðlauna þá m.a. með því að fá að máta
sig við erlenda atvinnukylfinga í keppni
hér heima. Það er mjög mikilvægt að þessi
samanburður fari reglulega fram svo við
vitum hvar við stöndum með okkar bestu
kylfinga. Það er varla hægt að hugsa sér það
betra en að fá þennan samanburð fyrir 50
bestu íslensku kylfingana á einu og sama
mótinu. Það er ekki markmið í sjálfu sér
að fá hingað ofurstjörnur í golfinu heldur
leikmenn sem okkar bestu leikmenn geta
borið sig saman við. Það væri þó vissulega
gaman að fá erlenda stórstjörnu til að
taka þátt í mótinu í framtíðinni. GR-
bikarinn í ár var mikil golfsýning þar sem
nokkrir leikmenn jöfnuðu vallarmetið á
Grafarholtsvelli, þar á meðal einn erlendi
leikmaðurinn. Golfklúbbur Reykjavíkur
stefnir á að halda áfram með GR-bikarinn
á sömu braut með opnum huga fyrir
nýjum áskorunum og tækifærum. Við
erum þakklát Securitas, Eimskip, GSÍ,
veðurguðunum, Þórði Rafni og fjölskyldu
og öðrum þeim sem áttu með þátttöku sinni
eða annarri aðkomu þátt í að gera mótið að
skemmtilegum golfviðburði,“ sagði Ragnar
Baldursson.
– heimsókn fjögurra erlendra kylfinga á
Eimskipsmótaröðina tókst vonum framar
Tilraun sem heppnaðist vel
Bernhard Reiter frá
Austurríki tók þátt
á Securitasmótinu.
Mynd/seth@golf.is
Grafarholtsvöllur
skartaði sínu fegursta
á Securitasmótinu.
Mynd/seth@golf.is
Liam Robinson
frá Englandi slær
hér á 1. teig á
Grafarholtsvelli.
Mynd/seth@golf.is
TIL ÖRYGGIS Í NÆSTUM 40 ÁR
Heimavörn - beintengdu
heimilið við stjórnstöð Securitas
Sumarhúsavörn - njóttu þess
að vera að heiman
Öryggishnappar - hugarró
fyrir þig og aðstandendur
Myndeftirlit - góð yfirsýn
sem eykur öryggi þitt
Við hvetjum þig til að skoða hvernig lausnir Securitas geta aukið öryggi þitt og þinna
Kynntu þér þjónustuframboð Securitas á heimasíðu okkar www.securitas.is eða hafðu samband í síma 580-7000
Öflugt viðbragðsafl á öllum tímum – Okkar vakt lýkur aldrei
Firmavörn - sniðin að þörfum
þíns fyrirtækis
Brunaviðvörunarkerfi
- lausnir fyrir allar aðstæður
Slökkvikerfi - ásamt öflugri
slökkvitækjaþjónustu
Vöruvernd - öryggislausnir
sem stöðva þjófnað
Atvinnulífið
Securitas hefur að bjóða öryggiskerfi í fyrirtæki af öllum stærðum og
gerðum en jafnframt sérsniðnar lausnir fyrir mismunandi þarfir:
Heimilislífið
Securitas býður fjölbreytta þjónustu fyrir einstaklinga
og fjölskyldur sem vilja huga að öryggi sínu:
Skip og bátar - öryggisbún-
aður og öryggiskerfi á sjó
Gæsla - mönnuð gæsla,
fjargæsla og forvarnir
Myndeftirlit - myndavélar,
vöktun og betri yfirsýn
Aðgangsstýring - fullkomið
innbrota- og aðgangsstýrikerfi
Akstursþjónusta - sérþjálfaðir
ökumenn og öryggi alla leið
Heilbrigðislausnir - sjúkra-
kallkerfi, öryggishnappar og
umönnunarkerfi
Námskeið - ýmis öryggis-
námskeið í boði fyrir fyrirtæki
og stofnanir
Slökkvitæki - öryggisvörur
fyrir heimilið og bílinn
20 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Tilraun sem heppnaðist vel