Golf á Íslandi - 01.10.2016, Blaðsíða 75

Golf á Íslandi - 01.10.2016, Blaðsíða 75
bandarísku LPGA atvinnumótaröðina og þangað eigum við að beina okkar bestu leikmönnum í kvennaflokki.“ Úlfar segir að það sé ánægjuleg þróun að margir sterkir kylfingar bætist í hóp þeirra sem ætla sér í atvinnumennsku. Það sé verkefni sem þurfi að vinna með faglegum hætti. „Við höfum verið að feta svipaða braut og Svíarnir gerðu á sínum tíma. Búa til teymi af kylfingum sem vinna saman og á bak við þessa kylfinga eru mörg teymi sem vinna þverfaglega að því að koma þeim enn lengra. Það er gríðarlega erfitt að standa einn í þessu líkt og Birgir Leifur Hafþórsson gerði á sínum tíma þegar hann hóf atvinnumannsferilinn fyrir tveimur áratugum.“ Ráða þarf landsliðs­ þjálfara í 100% starf Starf landsliðsþjálfara hjá GSÍ er að mestu leiðbeinandi að sögn Úlfars og hefur það breyst töluvert frá því sem áður var. Afreksstefnan sem kynnt var í lok ársins 2011 er mjög merkilegt og öflugt tæki sem leiðarvísir fyrir klúbba og afrekskylfinga að vinna með. Þarna eru viðmið um hina ýmsu þætti sem snúa að þróun kylfinga frá unga aldri til hinna allra fremstu. Forgjafarviðmiðin sem sett eru fram eru t.d. gott dæmi um það hvernig slík viðmið hafa virkað vel og verið hvetjandi fyrir kylfinga. „Árangur kylfinga er að langstærstum hluta þeirra ástundun og vinnusemi að þakka, 80-90% er frá þeim sjálfum komið. Hlutverk GSÍ, klúbba, foreldra og þjálfara er einnig mjög mikilvægt. Samvinnuverkefni þessara aðila er að búa til eins góða umgjörð og hægt er fyrir afrekskylfingana og miðla þekkingu og reynslu til þeirra.“ „Að mínu mati er GSÍ á þeim stað í dag með landsliðsstarfið að ráða þarf landsliðsþjálfara í 100% starf. Það var ekki rétti tímapunkturinn til þess að gera slíkt fyrir fimm árum þegar ég var ráðinn en ég tel að sá tími sé runninn upp. Ég held að golfhreyfingin eigi að leita innávið þegar nýr þjálfari verður ráðinn. Landsliðsþjálfari á að mínu mati að vera búsettur á Íslandi og í góðum tengslum við leikmenn. Umhverfið hefur breyst mikið frá þeim tíma þegar t.d. Staffan Johansson þáverandi landsliðsþjálfari var búsettur í Svíþjóð og kom hingað til lands með reglulegu millibili. Í dag eru mun fleiri PGA kennarar starfandi á Íslandi og mun meiri þekking til staðar en áður. Landsliðsþjálfarinn er meira í því hlutverki að leiðbeina og benda á leiðir til úrbóta, án þess að vera í því hlutverki að þjálfa einstaka leikmenn. Það er hlutverk PGA kennaranna hjá viðkomandi klúbbum þar sem leikmennirnir æfa alla daga. Þjálfarinn og leikmaðurinn vinna saman að framþróun leikmannsins hvað varðar tæknina, hugarþjálfun og líkamlega þáttinn. Landsliðsþjálfari þarf vissulega að setja sig inn í þá tækni sem leikmenn beita til þess að geta gefið ráð og leiðbeint þegar þess þarf, t.d. í landsliðsferðunum. Landsliðsþjálfarastarfið hefur breyst meira í upplýsingagjöf, marka stefnu, setja viðmið, leiðbeina um æfingamagn, aðstoða kylfinga við að komast i skóla erlendis o.s.frv. Þjónustan við afrekskylfinga hefur breyst til hins betra að mínu mati.“ Þakklátur fyrir tækifærið og stuðninginn frá GSÍ „Ég fengið mikinn stuðning frá GSÍ og það er hlutverk landsliðsþjálfarans að taka erfiðar ákvarðarnir varðandi val á leikmönnum í verkefnin. Þær ákvarðanir eru oft umdeildar og skiptar skoðanir á því hvað sé rétt og rangt. GSÍ hefur alltaf stutt vel við bakið á mér á þeim stundum. Mér finnst gagnrýnin sem GSÍ hefur fengið varðandi ýmis mál oft vera óréttmæt, starfið sem unnið er hjá Golfsambandinu yfir sumartímann er þrekvirki. Þar vinna allir af miklum heilindum undir miklu álagi, mótahald um hverja helgi, samhliða daglegum rekstri. GSÍ er ekki hafið yfir gagnrýni en ég hef aðeins upplifað að þar á bæ séu allir að vinna af metnaði og fagmennsku fyrir golfhreyfinguna.“ Úlfar er þakklátur fyrir það tækifæri sem hann fékk á sínum tíma þegar hann var ráðinn sem landsliðsþjálfari. „Ég var ekki á leiðinni í þetta starf þegar til mín var leitað á sínum tíma, sá það frekar kannski seinna á ferlinum. Ég hafði metnað til að gera enn betur og mig langaði að fást við þetta þegar ég var ráðinn, og hver veit nema sá tími komi aftur seinna. Þótt ég skilji við þetta starf á þessum tímapunkti mun ég vera reiðubúinn til aðstoðar enda vil ég leggja mitt af mörkum til að halda áfram að þróa það góða starf sem á sér stað í golfhreyfingunni,” sagði Úlfar Jónsson. Íslenskur sumarfatnaður hjá golfþjálfurum. Frá vinstri: Ragnar Ólafsson, Björgvin Sigurbergsson og Úlfar Jónsson. Mynd/seth@golf.is TÆKIFÆRIÐ ER NÚNA. „ “ Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður í knattspyrnu. Það eru margir þættir sem stuðla að því að einstaklingar og lið ná að skipa sér í fremstu röð. Kjarkur, dugur og þor eru þar á meðal. Það hjálpar líka alltaf að taka Lýsi. LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR LEYNIVOPN.IS ALLTAF AÐ ÆFA. ALLTAF AÐ KEPPA. ALLTAF AÐ SANNA MIG. 76 GOLF.IS - Golf á Íslandi Golfíþróttin er á góðum stað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131

x

Golf á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.