Golf á Íslandi - 01.10.2016, Side 75
bandarísku LPGA atvinnumótaröðina og
þangað eigum við að beina okkar bestu
leikmönnum í kvennaflokki.“
Úlfar segir að það sé ánægjuleg þróun að
margir sterkir kylfingar bætist í hóp þeirra
sem ætla sér í atvinnumennsku. Það sé
verkefni sem þurfi að vinna með faglegum
hætti. „Við höfum verið að feta svipaða
braut og Svíarnir gerðu á sínum tíma. Búa
til teymi af kylfingum sem vinna saman
og á bak við þessa kylfinga eru mörg teymi
sem vinna þverfaglega að því að koma
þeim enn lengra. Það er gríðarlega erfitt
að standa einn í þessu líkt og Birgir Leifur
Hafþórsson gerði á sínum tíma þegar hann
hóf atvinnumannsferilinn fyrir tveimur
áratugum.“
Ráða þarf landsliðs
þjálfara í 100% starf
Starf landsliðsþjálfara hjá GSÍ er að mestu
leiðbeinandi að sögn Úlfars og hefur
það breyst töluvert frá því sem áður var.
Afreksstefnan sem kynnt var í lok ársins
2011 er mjög merkilegt og öflugt tæki sem
leiðarvísir fyrir klúbba og afrekskylfinga
að vinna með. Þarna eru viðmið um hina
ýmsu þætti sem snúa að þróun kylfinga
frá unga aldri til hinna allra fremstu.
Forgjafarviðmiðin sem sett eru fram eru t.d.
gott dæmi um það hvernig slík viðmið hafa
virkað vel og verið hvetjandi fyrir kylfinga.
„Árangur kylfinga er að langstærstum hluta
þeirra ástundun og vinnusemi að þakka,
80-90% er frá þeim sjálfum komið. Hlutverk
GSÍ, klúbba, foreldra og þjálfara er einnig
mjög mikilvægt. Samvinnuverkefni þessara
aðila er að búa til eins góða umgjörð og
hægt er fyrir afrekskylfingana og miðla
þekkingu og reynslu til þeirra.“
„Að mínu mati er GSÍ á þeim stað í
dag með landsliðsstarfið að ráða þarf
landsliðsþjálfara í 100% starf. Það var ekki
rétti tímapunkturinn til þess að gera slíkt
fyrir fimm árum þegar ég var ráðinn en ég
tel að sá tími sé runninn upp. Ég held að
golfhreyfingin eigi að leita innávið þegar
nýr þjálfari verður ráðinn. Landsliðsþjálfari
á að mínu mati að vera búsettur á Íslandi
og í góðum tengslum við leikmenn.
Umhverfið hefur breyst mikið frá þeim
tíma þegar t.d. Staffan Johansson þáverandi
landsliðsþjálfari var búsettur í Svíþjóð
og kom hingað til lands með reglulegu
millibili. Í dag eru mun fleiri PGA kennarar
starfandi á Íslandi og mun meiri þekking til
staðar en áður. Landsliðsþjálfarinn er meira
í því hlutverki að leiðbeina og benda á leiðir
til úrbóta, án þess að vera í því hlutverki
að þjálfa einstaka leikmenn. Það er
hlutverk PGA kennaranna hjá viðkomandi
klúbbum þar sem leikmennirnir æfa alla
daga. Þjálfarinn og leikmaðurinn vinna
saman að framþróun leikmannsins hvað
varðar tæknina, hugarþjálfun og líkamlega
þáttinn. Landsliðsþjálfari þarf vissulega
að setja sig inn í þá tækni sem leikmenn
beita til þess að geta gefið ráð og leiðbeint
þegar þess þarf, t.d. í landsliðsferðunum.
Landsliðsþjálfarastarfið hefur breyst meira í
upplýsingagjöf, marka stefnu, setja viðmið,
leiðbeina um æfingamagn, aðstoða kylfinga
við að komast i skóla erlendis o.s.frv.
Þjónustan við afrekskylfinga hefur breyst til
hins betra að mínu mati.“
Þakklátur fyrir tækifærið
og stuðninginn frá GSÍ
„Ég fengið mikinn stuðning frá GSÍ og
það er hlutverk landsliðsþjálfarans að
taka erfiðar ákvarðarnir varðandi val á
leikmönnum í verkefnin. Þær ákvarðanir
eru oft umdeildar og skiptar skoðanir á því
hvað sé rétt og rangt. GSÍ hefur alltaf stutt
vel við bakið á mér á þeim stundum. Mér
finnst gagnrýnin sem GSÍ hefur fengið
varðandi ýmis mál oft vera óréttmæt,
starfið sem unnið er hjá Golfsambandinu
yfir sumartímann er þrekvirki. Þar vinna
allir af miklum heilindum undir miklu
álagi, mótahald um hverja helgi, samhliða
daglegum rekstri. GSÍ er ekki hafið yfir
gagnrýni en ég hef aðeins upplifað að
þar á bæ séu allir að vinna af metnaði og
fagmennsku fyrir golfhreyfinguna.“
Úlfar er þakklátur fyrir það tækifæri sem
hann fékk á sínum tíma þegar hann var
ráðinn sem landsliðsþjálfari. „Ég var ekki
á leiðinni í þetta starf þegar til mín var
leitað á sínum tíma, sá það frekar kannski
seinna á ferlinum. Ég hafði metnað til að
gera enn betur og mig langaði að fást við
þetta þegar ég var ráðinn, og hver veit
nema sá tími komi aftur seinna. Þótt ég
skilji við þetta starf á þessum tímapunkti
mun ég vera reiðubúinn til aðstoðar enda
vil ég leggja mitt af mörkum til að halda
áfram að þróa það góða starf sem á sér stað í
golfhreyfingunni,” sagði Úlfar Jónsson.
Íslenskur sumarfatnaður hjá
golfþjálfurum. Frá vinstri: Ragnar
Ólafsson, Björgvin Sigurbergsson
og Úlfar Jónsson. Mynd/seth@golf.is
TÆKIFÆRIÐ
ER NÚNA.
„
“
Alfreð Finnbogason,
landsliðsmaður í knattspyrnu.
Það eru margir þættir sem stuðla að því að einstaklingar og lið ná
að skipa sér í fremstu röð. Kjarkur, dugur og þor eru þar á meðal.
Það hjálpar líka alltaf að taka Lýsi.
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
LEYNIVOPN.IS
ALLTAF AÐ ÆFA.
ALLTAF AÐ KEPPA.
ALLTAF AÐ SANNA MIG.
76 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Golfíþróttin er á góðum stað