Golf á Íslandi - 01.10.2016, Blaðsíða 24
Vinkonurnar eru félagar í Golfklúbbi Kópavogs og
Garðabæjar. Ragnheiður er tiltölulega nýflutt á
höfuðborgarsvæðið. Hún starfar hjá Eimskip en Hulda
starfar hjá TVG Zimsen sem er dótturfélag Eimskips.
Golf á Íslandi ræddi við þær Huldu og Ragnheiði á dögunum þar sem þær
voru að leika golf með Birni Steinari Stefánssyni (Bjössa) eiginmanni Huldu
og 9 ára barnabarni þeirra, Árna Birni. Veðrið var frábært eins og flesta daga
í ágústmánuði og þær Hulda og Ragnheiður sögðu golfsögu sína í stuttu
máli.
Ragnheiður: „Ég flutti hingað á
höfuðborgarsvæðið í ágúst í fyrra frá
Siglufirði. Ég byrjaði í golfi á Siglufirði eftir
að Hulda og Bjössi skoruðu á mig að byrja.
Hulda: „Mér fannst golf alveg fáránlega
asnaleg íþrótt og leiðinleg. Ég var búin
að segja lengi að ég ætlaði aldrei að byrja
í þessu, aldrei. Ég fór í golfmót með Bjössa
fyrir mörgum árum og fannst þetta alveg
glatað.“
Ragnheiður: „Við fórum m.a. til Suður-
Afríku þrjú saman árið 2011 þar sem dvalið
var á golfsvæði og Bjössi var sá eini sem lék
golf á þeim tíma. Hann var reyndar alltaf
að ýta því að okkur að koma og prófa en við
snerum okkur bara við í sólbaðinu og létum
þetta sem vind um eyru þjóta.“
Hulda: „Í ágúst árið 2011 gerðist það
að vinnufélagar mínir í TVG Zimsen
hálfpartinn píndu mig í fyrirtækjamót í
Bakkakoti. Ég sagði að þau væru rugluð
að reyna þetta þar sem ég hefði ekki einu
sinni áhuga á að fara í golf með manninum
mínum. Ég lét undan hópþrýstingnum
og fór í Texas Scramble mót með þeim.
Það var bara ótrúlega skemmtilegt og það
gerðist eitthvað á þeim degi sem ég get
ekki útskýrt. Ég tryggði liðinu mínu sigur á
lokaholunni með því að setja niður langt
pútt. Og ég kom mjög ánægð heim.“
Ragnheiður: „Ég byrjaði ekki fyrr en ég
fékk þau skilaboði frá Huldu og Bjössa að
ég þyrfti að byrja í golfi til þess að fá að
„hanga“ með þeim. Allt á léttu nótunum
samt en ég tók þessari áskorun og byrjaði
bara á því að mæta í golfmót á Siglufirði.
Hulda og Bjössi komu í heimsókn norður á
Siglufjörð þar sem Hulda ætlaði að taka þátt
í kvennamóti. Ég var búin að öngla saman
alls konar golfdrasli úr bílskúrum bæjarins
fyrir mig. Eldgamalt dót sem enginn vildi
nota. Ég mætti síðan út á Hólinn þar sem
golfvöllurinn er og þar var markmiðið að
slá nokkra bolta og fá leiðbeiningar frá
Bjössa. Eftir að hafa slegið þrjá bolta horfði
ég á Bjössa og sagði að þessu myndi ég ekki
nenna. Ég ákvað að vera bara með í mótinu
og mætti á teig með nokkrum konum sem
þar voru. Ég tók Bjössa með mér og hann
var titlaður sem leiðbeinandinn í þessum
ráshóp. Þær héldu að ég væri alveg búinn
að missa vitið og Bjössi hristi bara hausinn
af undrun. Ég hitti boltann ekki oft á
þessum fyrsta golfhring og vissi í raun ekkert
hvað ég var að gera. Þegar við komu á 8.
braut þurfti ég að vippa inn á flötina af um
20 metra færi. Ég vissi ekkert hvernig ég
átti að gera þetta en ég sló, boltinn fór beint
á flaggið og ofan í holuna. Fagnaðaröskrin
frá mér bergmála eflaust enn í fjöllunum
við Siglufjörð, þvílík tilfinning, og á þessu
augnabliki fékk ég golfdellluna. Í kjölfarið
fór Bjössi að safna saman aðeins betra
golfdóti fyrir mig. Hann keypti m.a. aftur
gamlan golfpoka sem hann hafði selt áður
og ég fékk gamla kerru og gamlar kylfur.
Ég tók síðan bara þátt í öllum mótum sem
hægt var að keppa á og fór á bólakaf í þetta.
Fólk hélt að ég væri stórskrítin að byrja
svona en mér var alveg sama. Ég var í þessu
á mínum forsendum og ætlaði að skemmta
mér við þetta.“
Hulda: „Þegar golfið hittir mann svona af
krafti þá fer maður alla leið í þessu. Ég fór
Hulda slær hér inn á 8. flöt í Mýrinni.
Mynd/seth@golf.is
Ragnheiður að vanda púttið og bítur
aðeins í neðri vörina. Mynd/seth@golf.is
WI-FI PRENTARAR,
BLEK OG PAPPÍR
VIÐ HÖFUM GÓÐA REYNSLU
AF SKÓLAVERKEFNUM
Í NETVERSLUN.IS ER ÚRVAL AF GRÆJUM
SEM HJÁLPA ÞÉR AÐ LEYSA SKÓLAVERKEFNIN
FARTÖLVUR
Verð frá: 49.900 kr.
Y700
Kraftmikil og skemmtileg fyrir leikina Frábært verð – mikil gæði Hraður og öflugur SSD diskur
Verð frá: 189.900 kr.
YOGA 3
Verð frá: 99.900 kr.
NÝHERJI / BORGARTÚNI 37, MÁN.-FÖS. KL. 9-18 & LAU. KL. 11-15 / KAUPANGI AKUREYRI, MÁN.-FÖS. KL. 9-17 / NETVERSLUN.IS
Einstakt úrval fyrir góða námsmenn.
BAKPOKAR, TÖSKUR OG UMSLÖG FRÁBÆR ÞRÁÐLAUS HEYRNARTÓL
Frá Bose, Audio Technica, Plantronics og Sony.
Við bjóðum
allt að 12 mánaða
vaxtalaus lán*
*3,5% lántökug jald og
405 kr. færslug jald
VELDU
FARTÖLVU
FRÁ STÆRSTA PC
FRAMLEIÐANDA
Í HEIMI*
*Gartner F2 2016
24 GOLF.IS - Golf á Íslandi
„Aldrei of seint að byrja“