Golf á Íslandi - 01.10.2016, Qupperneq 113
Zach Johnson Kevin Kisner Jimmy Walker Rafa Cabrera-BelloBill HaasKevin Na
68 YEARS.
ONE BALL.
THE #1 BALL PLAYED AT THE U.S. OPEN® FOR 68 YEARS.
Source: Darrell Survey. U.S. Open is a registered service mark of the United States Golf Association® and is used with the permission of the United States Golf Association. The USGA does not endorse or sponsor Titleist or its products in any way.
Jordan Spieth Adam ScottRickie FowlerBubba Watson Henrik Stenson Louis Oosthuizen
To be successful at the U.S. Open takes talent, precision and patience. It also demands a golf ball that provides
exceptional distance, control and consistency. It’s especially true this year when players take on Oakmont Country
Club, one of the most difficult courses in the world, with its tight fairways, hard and slick greens, and famous
Church Pews bunker. And it’s why the overwhelming majority will rely on Titleist, just as they did when they played
Oakmont in 1953, 1962, 1973, 1983, 1994 and 2007. And as they have in every U.S. Open for 68 consecutive years.
Hver er ástæðan fyrir því að þú ert í
golfi? „Ég held að það sé nú bara þannig að
öll fjölskyldan mín er í þessu sporti þannig
að þau fengu mig með sér í golfið.“
Hvað er skemmtilegast við golfið?
„Þegar ég finn að allt gengur vel og ég næ
að leika mitt besta golf.“
Framtíðardraumarnir í golfinu?
„Ég stefni á að komast á skólastyrk í háskóla
í Bandaríkjunum.“
Hver er styrkleikinn þinn í golfi?
„Upphafshöggin og járnahöggin eru það sem
ég treysti mest á.“
Hvað þarftu að laga í þínum leik?
„Púttin og pitch höggin.“
Hvað er það eftirminnilegasta sem
hefur gerst hjá þér í golfi? „Þegar ég fór
holu í höggi á 18. braut á lokahringnum
á Húsatóftavelli í Grindavík á
Íslandsbankamótaröðinni.“
Hvað er vandræðalegasta atvikið á
golfvellinum hjá þér? „Ömurlegt dræv
30 metrum til vinstri við skotmarkið fyrir
framan hóp af fólki.“
Draumaráshópurinn? „Tiger Woods,
Annika Sörenstam og Jason Day.“
Uppáhaldsgolfvöllurinn og hvers
vegna? „Hamarsvöllur í Borgarnesi, hann
er skemmtilega hannaður og í góðu ástandi.
Urriðavöllur hjá Oddi er einnig flottur
keppnisvöllur og mjög krefjandi.“
Hvaða þrjár golfholur eru í uppáhaldi
hjá þér? „Fyrsta holan á Garðavelli
á Akranesi, sextánda holan/eyjan á
Hamarsvelli í Borgarnesi og sautjánda holan
á Leirdalsvelli.“
Hvaða áhugamál hefur þú fyrir
utan golf? „Söngur og leiklist, og mér
finnst voðalega gaman að læra og vera í
skólanum.“
Í hvaða skóla og bekk ertu?
„Garðaskóla í 10. bekk.“
Staðreyndir
Nafn: Herdís Lilja Þórðardóttir.
Aldur: 14 að verða 15.
Forgjöf: 10.8.
Uppáhaldsmatur: Allur matur er góður
en pítsa og nautasteik er í uppáhaldi.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn og Coke.
Uppáhaldskylfa: Get ekki gert upp á
milli 9-járnsins og dræversins.
Ég hlusta á: Góða tónlist.
Besta skor í golfi: 73 högg.
Rory McIlroy, Tiger Woods eða Jordan
Spieth? Tiger Woods.
Besta vefsíðan: YouTube.
Besta blaðið: Að sjálfsögðu Golf á
Íslandi.
Hvað óttast þú mest í golfinu: Að fá
bolta í mig.
Dræver: Callaway Great Big Bertha.
Brautartré: Callaway 5-tré, 7-tré.
Járn: Taylor Made.
Fleygjárn: 56 og 52 gráður.
Pútter: Scotty Cameron (GoLo Titleist)
Hanski: Ecco
Skór: Biom Ecco, svartir með tökkum
Golfpoki: Ecco.
Kerra: ClickGear með svörtum
dekkjum.
Hraðaspurningar
Hola í höggi
á lokaholunni
eftirminnilegast
Boltinn ofaní holunni eftir
draumahögg Herdísar.
Mynd/GG
Herdís Lilja við 18. holuna á Húsatóftavelli
þar sem hún fór holu í höggi á lokaholunni
á Íslandsbankamótaröðinni. Mynd/GG
– GKG-ingurinn
Herdís Lilja Þórðar
dóttir stefnir á
háskólastyrk í
Bandaríkjunum
114 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Hraðaspurningar