Golf á Íslandi - 01.10.2016, Side 121
Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands undirrituðu í lok júlí tímamótasamning til næstu þriggja ára um
stóraukið fjárframlag ríkisins til afreksíþrótta á Íslandi. Framlagið mun
hækka í áföngum úr 100 milljónum á fjárlögum síðasta árs í 400 milljónir á
næstu þremur árum og er því um fjórföldun að ræða.
„Þetta verður algjör bylting fyrir okkur
hjá ÍSÍ sem höfum haft úr allt of litlu að
spila til að aðstoða sérsambönd ÍSÍ og
þá afreksfólkið til að það geti helgað sig
íþrótt sinni og náð sem bestum árangri,“
segir Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, um
samninginn. „Margt afreksfólk hefur
búið við það að meiri tími hefur farið í
að fjármagna ferðir, þjálfarakostnað og
uppihald heldur en að æfa og undirbúa
sig fyrir keppnir. Við höfum eingöngu
getað hjálpað þeim sem hafa náð miklum
árangi, en umtalsverður kostnaður fylgir
því að ferðast og keppa til að tryggja sér
þátttökurétt t.d. á Ólympíuleikunum. Sá
kostnaður lendir oft og tíðum að miklu
leyti á keppandanum sjálfum,“ segir
Lárus. „Það er allt of algengt að íslenskt
afreksíþróttafólk hætti of snemma.
Samkvæmt því sem við höfum kannað
er það oftar en ekki vegna erfiðleika
við fjármögnun eða vanlíðan vegna
fjárhagsáhyggja. Vonandi mun þessi
samningur koma í veg fyrir mikið brottfall
af fjárhagslegum ástæðum.“
Lárus telur samninginn mjög
þýðingarmikinn fyrir íþróttastarf í
landinu. „Hér er um algera byltingu fyrir
afreksíþróttir að ræða og við þökkum
ríkisvaldinu fyrir að hafa trú á því að
árangur í íþróttum skipti þjóðina máli, og að
það þurfi aukið fjármagn til að hann náist.
Við erum nú komin mun nær því að geta
byggt upp umgjörð fyrir afreksíþróttafólkið
okkar í líkingu við það sem þekkist í
nágrannalöndum okkar, þótt við náum
líklega aldrei alveg jafn góðum aðbúnaði
og þær mun fjölmennari þjóðir. Þessi
niðurstaða er árangur samningaviðræðna
okkar til nokkurra ára og í kjölfar ítarlegrar
greiningar á fjárþörf afreksíþrótta á Íslandi.
Það sýndi sig þegar KSÍ náði að laga
til umgjörðina utan um landslið sín að
árangurinn kom fljótt í ljós. Við vonum að
þessi auknu framlög í Afrekssjóð ÍSÍ muni
gera öðrum sérsamböndum kleift að bæta
umgjörðina utan um sína afreksmenn.“
Það voru margir úr íþróttahreyfingunni
viðstaddir þegar samningurinn var
undirritaður í blíðskaparveðri við
Íþróttamiðstöðina í Laugardalnum.
Mynd/seth@golf.is
Tímamótasamningur
– „Hér er um algera byltingu
fyrir afreksíþróttir að ræða,“
segir Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ
Lárus Blöndal forseti ÍSÍ flytur ávarp. Við borðið sitja
frá vinstri, Líney Halldórsdóttir framkvæmdastjóri
ÍSÍ, Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra,
Illugi Gunnarsson Menntamálaráðherra og Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra. Mynd/seth@golf.is
122 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Tímamótasamningur