B+ - 01.01.2009, Qupperneq 9
fréttabréf biblíufélagsins B+
því ekki umhyggju þeirra sem standa
henni næst og aðstandendurnir sjálfi r
geta ekki sýnt umhyggju sínum nán-
asta fjölskyldumeðlimi sem þarfnast
hennar mest. Þetta er staða þar sem
allir eru „læstir“ í hinu ríkjandi við-
horfi samfélagsins og því vanmegnugir
að bregðast við og koma til aðstoðar og
hjálpa.
Kirkjurnar skerast í leikinn
Kirkjurnar í Kongó ætla að taka sig
saman og breyta þessu ástandi. Það
sem er mest aðkallandi er að rjúfa ein-
angrun þessara kvenna og veita þeim
þá aðstoð sem þær þarfnast. Sumar
þurfa að komast á sjúkrahús, allar
þurfa þær sálfræðiaðstoð og það sem
er mikilvægast: að endurheimta von
á lífi ð aftur. Kaþólska kirkjan, kirkjur
mótmælenda og ýmis kristin samtök
sem láta sig ástandið varða ætla að
vinna saman að þessu brýna verk-
efni. Um 85% landsmanna eru kristin
og kirkjan er því kjörinn vettvangur til
þess að vinna á fordómunum og veita
andlega næringu. Þáttur Biblíufélags-
ins í Kongó verður að útvega Biblíur
til að dreifa til fólksins, bæði prentað-
ar bækur og hljóðbækur handa þeim
sem ekki kunna að lesa. Sérstaklega er
skortur á Biblíunni á Svahílí, málinu
sem fl estir tala.
©
l
ar
ry
Je
rd
en
„Eigi lifi r maðurinn á einu saman brauði.“ Hér teygir fólk sig eftir Kinyarwanda-sálmabókinni sem Biblíufélagið í
Kongó gaf út sérstaklega fyrir fl óttafólk frá Rúanda. Myndin er tekin í Nyabibwe Kalehe fl óttamannabúðunum
nálægt Bukavu í Kongó.
Brýnt og aðkallandi verkefni
Orð Guðs er fært um að endurvekja von
og veita styrk hinum þjáða og vekja til
nýs lífs. Jesús segir: „Komið til mín, öll
þér sem erfi ðið og þunga eruð hlaðin,
og ég mun veita yður hvíld“ (Matt
11.28).
Það er með þetta erindi sem Biblíu-
félagið í Kongó snýr sér til Sameinuðu
biblíufélaganna með beiðni um aðstoð
við þetta brýna og aðkallandi verkefni.
Biblíufélagið á Íslandi vill svara þessu
kalli og veita þá aðstoð sem það getur
og treystir sem fyrr á stuðning félaga
sinna og styrktaraðila.
©
M
au
ri
Ce
h
ar
ve
y
Konur fá Biblíur í í Kirkjuhúsinu í Kinshasa, höfuðborg
Kongó.
Starf Biblíufélagsins hefst venjulega hér, á verslunar-
götum Kinshasa.
©
M
au
ri
Ce
h
ar
ve
y
Mikil þörf er fyrir Biblíur í Kongó.