Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Page 3
2 Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
3
Vetrarþjónusta í forgang
Í vetur lagði Vegagerðin mikla áherslu á öfluga
vetrarþjónustu til að halda leiðum til Grindavíkur
opnum og greiðfærum eins og kostur var. Í
vetrarþjónustu felst meðal annars að moka snjó af
vegum og hálkuverja vegi eftir því sem við á. Vaktstöð
Vegagerðarinnar miðlar öllum upplýsingum um lokanir
og opnanir á vegum á umferdin.is/trafficinfo.is.
Suðurstrandavegur við Festarfjall
lagfærður
Vegagerðin hefur einnig látið lagfæra og styrkja
Suðurstrandarveg við Festarfjall á um 800 metra
kafla. Sett var efni utan á vegfláa að sunnanverðu
til að styrkja veginn. Einnig var ræsi sem liggur í
gegnum veginn lengt í báðar áttir. Áður var búið
að hliðra veginum um 1,5 metra og færa hann nær
fjallinu á umræddum kafla. Var það gert til að auka
umferðaröryggi vegfarenda. Vegfláinn hreyfðist til og
seig í jarðskjálftunum sem urðu áður en gos hófst í
Fagradalsfjalli 2021.
Kortlagning á sprungum
Frá því í janúar hefur Vegagerðin í samstarfi við
verkfræðistofur unnið að því að kortleggja sprungur
og hugsanleg holrými við Grindavík með sérstökum
jarðsjárdróna, ásamt minni jarðsjá. Gögnin hafa meðal
annars verið notuð til að forgangsraða viðgerðum í
bænum, auk þess að greina hættusvæði, t.d. vegna
holrýma. Gögnin koma jafnframt að góðum notum fyrir
viðbragðsaðila og þá sem skipuleggja verðmætabjörgun
í bænum. Upplýsingarnar munu enn fremur nýtast til
þess að ákvarða hvaða viðgerðaraðferðum verður hægt
að beita við helstu sprungusvæði. Nánar er sagt frá
þessum jarðrannsóknum í annarri grein hér í blaðinu.
Myndir: Valgarður Guðmundsson, Vilhelm Gunnarsson ofl.
↑
Unnið að viðgerðum á götum í Grindavík.
↗
Starfsfólk Vegagerðarinnar hefur unnið að því að kortleggja
sprungur og holrými með jarðsjárdróna.
↘
Bláalónsvegur fór undir hraun.