Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Blaðsíða 8
8 Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
9
„Brúin var mjög illa farin, gólfið lélegt, steypan bágborin
og lítið hald fyrir vegriðið. Upphaflega hugmyndin
var að brjóta niður brúna og steypa hana upp á nýtt
í upprunalegri mynd en fljótlega var horfið frá þeirri
hugmynd þar sem hún var í raun verr farin en fyrst
var haldið,“ segir Vilhjálmur Árnason yfirverkstjóri
brúarvinnuflokksins á Hvammstanga sem sá um
framkvæmdir við verkið „Brú yfir Hjaltadalsá við
Laufskála (Hólavegur 767)“.
Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar gerði við
brúna yfir Hjaltadalsá í vetur en hún var illa farin
af steypuskemmdum. Brúin er enn einbreið en þó
hálfum metri breiðari en áður.
Lagfærðu brúna
yfir Hjaltadalsá
Í staðinn fyrir að steypa brúna var ákveðið að byggja
upp burðarbita hennar og setja stálbitabrú með
timburgólfi.
Framkvæmdir hófust í desember í fyrra. „Við byrjuðum
á því að brjóta gólfið á brúnni. Næsta verk var að
steypa ofan á stöplana,“ lýsir Vilhjálmur en töluvert
þurfti að laga brúarstöplana, sér í lagi miðstöpulinn
sem þurfti nánast að endursteypa alveg. „Þá var hann
heldur ekki í línu við hina svo við löguðum það.“
↓
Brúarflokkurinn að störfum við
Hjaltadalsá í vetur. Vetur og kuldi
gerðu vinnuna oft erfiða.