Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Qupperneq 14

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Qupperneq 14
14 Framkvæmdafréttir nr. 730 2. tbl. 32. árg. Framkvæmdafréttir nr. 730 2. tbl. 32. árg. 15 Vegagerðin leiddi þessa vinnu í samráði við innviðaráðuneytið og fleiri komu að verki. Í ferlinum var reglugerðaruppkast birt í samráðsgátt stjórnvalda og komu þá fram margar gagnlegar ábendingar víða að. Allt frá 1995 hefur það verið á verksviði Vegagerðarinnar að afhenda tölvumyndir tákna umferðarmerkja og í 4. grein nýrrar reglugerðar segir: „Vegagerðin skal á vefsíðu sinni gera aðgengilegar myndir og málsetningar merkja sem getið er í reglugerð þessari. Þar skal einnig birta myndir, málsetningar, heiti og númer annarra afbrigða af þeim merkjum sem í reglugerð þessari er sérstaklega getið að heimilt sé að útfæra á annan máta, þ.á.m. akreinamerkja og þjónustumerkja.“ Myndirnar eru nú aðgengilegar á vegagerdin.is undir flipanum „Vegakerfið“. Reglugerðin er mikið breytt en breytingar sem birtast vegfarendum í umferðinni eru þó ekki ýkja margar. Stóru breytingarnar eru kerfislegar, flokkaskiptingar og númerakerfi. Eins og áður tekur reglugerðin mið af samþykktum Vínarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umferðarmerkingar frá 1968 með síðari breytingum og færist nú enn nær því skjali, m.a. í flokkun merkja. Ísland hefur ekki undirritað samþykktina en ný reglugerð er skref í þá átt. Sú breyting er nú gerð á texta reglugerðarinnar að flestar vísanir til þess hvar og hvernig merkin eru notuð eru færðar í fjóra ítarlega viðauka. Breytingin er til þess fallin að gera sjálfa reglugerðina aðgengilegri almenningi, sér í lagi ökunemum. Leiðbeiningar í viðaukum eru fyrir veghaldara til að samræma notkun umferðarmerkja og veita Samgöngustofu aukna möguleika til að rækja eftirlitshlutverk sitt. Fljótleg leið til að finna reglugerðina er á vefnum stjornartidindi.is og þar skal setja setja „250/2024“ í leit efst í glugganum. Þá má m.a. finna pdf útgáfu reglugerðarinnar með öllum viðaukum. Ný umferðarmerkja- reglugerð Ný umferðarmerkjareglugerð tók gildi 1. mars sl. og leysti hún af hólmi eldri reglugerð sem að stofni til var tæplega 30 ára gömul með nokkrum breytingum. Höfundur: Viktor Arnar Ingólfsson Í reglugerðinni er opnað fyrir það á undirmerkjum og tímabundnum upplýsingamerkjum að auk texta á íslensku geti verið þýðing á erlendu máli og skal hún þá vera í öðrum lit en íslenski textinn. Flokkar umferðarmerkja og númer Breyting frá fyrri reglugerð er að tveir flokkar bætast við flokkun merkja en nokkrir sameinast þannig að flokkarnir eru nú 11 ef með eru taldar yfirborðsmerkingar og umferðarljós en voru 15 áður. Nýtt númerakerfi er tekið upp og er það að mestu byggt á sambærilegu norsku kerfi. Vegfarendur þurfa að vera meðvitaðir um heiti og hlutverk umferðarmerkja en númerin nýtast einkum stjórnvöldum, veghöldurum, birgjum, framleiðendum og öðrum þeim sem koma að vinnu með umferðarmerki. Umferðarmerki skiptast í þessa flokka: Merki til viðvörunar fyrir umferð: → 100 Viðvörunarmerki. Merki til stjórnunar umferðar: → 200 Forgangsmerki. (nýr flokkur, e. Priority signs) → 300 Bannmerki. → 400 Boðmerki. → 500 Sérreglumerki. (nýr flokkur e. Special regulation signs) Merki til leiðbeiningar fyrir umferð: → 600 Upplýsingamerki. → 700 Vegvísar og þjónustumerki. Önnur merki og búnaður: → 800 Undirmerki. → 900 Önnur merki.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.