Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Blaðsíða 16
16 Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
17
300 Bannmerki
Flokkur bannmerkja tekur óverulegum breytingum frá
gildandi reglugerð. Tekið er upp eitt nýtt bannmerki
306.8 Umferð gangandi vegfarenda og hjólreiðar
bannaðar en áður þurfti tvö merki í þessum tilgangi.
Lítilsháttar útlitsbreytingar eru gerðar á fjórum
merkjum 306.6 Hjólreiðar bannaðar, 315 Minnsta bil
milli vélknúinna ökutækja, 320 Takmarkaður ásþungi
og 324 Sérstök stöðvunarskylda.
Breyting á merki 320 Takmarkaður ásþungi er gerð
til að merkið endurspegli betur raunverulegar reglur
um takmarkaðan ásþunga í samræmi við reglur um
þyngd ökutækja. Sú þyngd sem gefin hefur verið upp á
merkinu til þessa hefur gefið til kynna mesta leyfilega
þunga á ás með fjórum hjólum, þrátt fyrir að á merkinu
hafi verið sýndur ás með tveimur hjólum.
400 Boðmerki
Flokkur boðmerkja tekur minniháttar breytingum frá
eldri reglugerð. Tekið er upp eitt nýtt boðmerki 455
Lágmarkshraði til að tilgreina sérstakar akreinar fyrir
hægfara umferð, þ.e. merkið er notað á akreinamerki
fyrir þá akrein sem hægfara umferð er ekki ætlað að
vera á. Ólíklegt er að merkið verði notað stakt hér á
landi en það þekkist víða erlendis og því æskilegt að
vegfarendur séu meðvitaðir um þýðingu þess.
200 Forgangsmerki
Hér má sjá myndir allra forgangsmerkja en þau eru
sjö talsins.
Allt eru þetta vel þekkt merki úr eldri reglugerð fyrir
utan 216 Fléttuakstur. Þegar ný umferðarlög voru
samþykkt á Alþingi árið 2019 kom inn nýtt ákvæði í 20.
grein, 4. mgr: „Þar sem tvær samhliða akreinar renna
saman í eina á vegi skulu ökumenn aka þannig að eitt
ökutæki fari í senn af hvorri akrein eftir því sem við
verður komið og umferðarmerki gefa það til kynna“.
Ekki var hægt að virkja þetta ákvæði fyrr en nýtt
umferðarmerki hafði verið birt í reglugerð og nú er það
tilbúið. Útlit merkisins, rauð ör á hvítum grunni er líkt
merkjum sem notuð eru í sama tilgangi annars staðar á
Norðurlöndunum.
202
Biðskylda
208
Aðalbraut
endar
212
Skylt að veita
umferð sem
kemur á móti
forgang
214
Umferð á móti
veitir forgang
204
Stöðvunarskylda
206
Aðalbraut
216
Fléttuakstur
↑
Fléttuakstur, sambærileg umferðarmerki á Norðurlöndunum,
frá vinstri; Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Ísland.
Fléttuakstur er mikil bót á umferðarmenningu og
verður vonandi notað víða þar sem tvær akreinar verða
að einni og aðstæður henta. Hér er á mynd sýnt hvernig
þetta virkar. Hefðbundið akreinamerki veldur því að
ökumenn á vinstri akrein reyna að komast á hægri
akrein á mismunandi stöðum. Þar sem er fléttuakstur
er klárt hvar akreinarnar sameinast og þar er til skiptis
ekið áfram líkt og tannhjól eða rennilást. Þá nýtast
akreinarnar líka betur og önnur umferð fær greiðari leið.
→
Dæmi um umferðarflæði
þar sem fléttureglan
kemur að góðum notum.
Bílstjóri rauða bílsins
sem ætlar að beygja
til hægri getur þurft að
bíða lengi í röð sem er
vegna þrengingar eftir
gatnamótin.
Forgangsmerki: Fléttuakstur