Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Qupperneq 18
18 Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
19
700 Vegvísar og þjónustumerki
Tveir flokkar úr eldri reglugerð eru sameinaðir í
einn númeraflokk en umfjöllun um merkin er haldið
aðgreindri í reglugerðinni.
Nýir vegvísar í brúnum lit eru notaðir til vísunar að
ferðamannastöðum sem uppfylla viðmið Vörðu sem
ráðuneyti ferðamála setur. Vörður eru merkisstaðir á
Íslandi sem teljast einstakir á lands- eða heimsvísu.
Meginaðdráttarafl þeirra eru náttúrufyrirbæri og/
eða menningarsögulegar minjar sem mynda sérstætt
landslag og landslagsheild. Heiti táknsins er 723.41
Ferðamannastaður með Vörðu. Annað tákn er svo
723.42 Staður á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna.
723.41 723.42
Rauður litur vegvísa verður áfram notaður við vísun að
opinberum byggingum og áhugaverðum stöðum.
Svartur texti á appelsínugulum fleti með svörtum jaðri
er notaður við tímabundna vísun á leið eða stað s.s.
vegna framkvæmda eða viðburða. Slík merki voru áður
í flokki bráðabirgðamerkja.
Vegvísar á hjólastígum- og hjólaleiðum eru grænir á
hvítum grunnfleti.
Verulegar breytingar eru gerðar á fyrirkomulagi
þjónustumerkinga. Felld eru á brott úr reglugerð á
um sjöunda tug þjónustumerkja. Eftir standa merki
neyðarþjónustu, mikilvægrar þjónustu fyrir umferð,
upplýsingar og áhugaverðra staða, gistiþjónustu og
valin merki annarrar þjónustu. Veghaldari getur hins
vegar heimilað notkun fleiri þjónustumerkinga, þ.m.t.
þeirra sem voru í eldri reglugerð en ekki þeirri nýju.
Jafnframt verður hægt að heimila ný þjónustumerki.
Gert er ráð fyrir að Vegagerðin birti á vefsíðu sinni lista
yfir slík þjónustutákn.
600 Upplýsingamerki
Gerð er sú grundvallarbreyting á flokki
upplýsingamerkja, að merki innan flokksins eru
eingöngu til upplýsingar fyrir vegfarendur en
kveða ekki á um skyldu eða bann við tiltekinni
háttsemi. Vegna þessa færðust nokkur merki í flokk
sérreglumerkja.
Áður var sérstakur flokkur fyrir appelsínugul
bráðabirgðamerki en þau verða hér eftir flokkuð sem
Upplýsingamerki.
Tekin eru upp fjögur ný upplýsingamerki 655.62
Meðalhraðaeftirlit, 655.71 Eftirlitsmyndavél, 659
Rafræn gjaldtaka og 660 Neyðarútgangur.
Gefinn er kostur á fleiri útfærslum en áður af merki
652.7 Botngata. Á merkinu má gefa til kynna að
göngustígur, hjólastígur eða sameiginlegur stígur sé
í framhaldi af götunni. Merkið tekur breytingum eftir
aðstæðum. Útlitsbreyting er að hvítur rammi umlykur
rauðan ferning. Það er til að auðvelda litblindum að
greina rauða fleti á bláum og er þetta víða erlendis haft
svona.