Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Side 21
20 Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 730
2. tbl. 32. árg.
21
Þingskálavegur er að hluta til malarvegur sem að sögn
Héðins var orðinn efnisrýr og erfitt að viðhalda. Slitlag
er beggja megin við framkvæmdakaflann og því verið
að tengja saman þessa tvo slitlagskafla. „Umferð um
veginn er alltaf að aukast þar sem ferðaþjónusta hefur
verið að byggjast upp og svo fer sumarhúsabyggðin
líka vaxandi,“ segir Héðinn. Sumardagsumferð
(meðalumferð á dag fyrir sumarmánuðina) er um 160
bílar en um veginn aka íbúar, sumarbústaðagestir en
einnig töluvert af ferðamönnum, bæði á eigin bíl og
hópferðabílum. Vetrardagsumferð er hins vegar lítil,
aðeins um 70 bílar. Þungaumferð er lítil en hins vegar
ekur skólabíll þessa leið.
Eins og áður sagði hófust framkvæmdir í mars. Fyrstu
vikurnar fóru í undirbúning og mælingar en í apríl hófst
efnisvinnsla í námu við Þingskálagryfju. Þá var byrjað
að aka með fyllingarefni í veginn til að byggja hann
upp. Einnig hafa ræsi verið flutt á rétta staði þar sem
þau bíða þess að verða skipt út fyrir eldri ræsi.
Vegurinn verður að mestu byggður upp í gömlu
veglínunni en stærsta breytingin verður við bæinn Heiði
þar sem færa þarf veglínuna á um 300 m kafla um
Heiðarlæk. „Í Heiðarlæk er steypt ræsi sem þarf að
brjóta niður en í þess stað verður sett nýtt og breiðara
ræsi. Einnig verður útbúin stífla fyrir uppistöðulón að
ósk landeiganda,“ segir Héðinn og bætir við að þessi
breyting á veginum muni auka umferðaröryggi til muna
en áður var kröpp beygja á veginum og sjónlengdir
takmarkaðar.
Nokkrar fornminjar eru á framkvæmdasvæðinu, til
dæmis tóft af hesthúsi og önnur heimild um hesthús.
Þessir staðir verða girtir af í upphafi framkvæmda í
samráði við Minjastofnun.
Stefnt er að því að verkinu verði að fullu lokið 15.
september á þessu ári.
Helstu magntölur eru:
→ Skeringar 5.500 m3
→ Bergskeringar í námu 18.500 m3
→ Fyllingar 25.000 m3
→ Styrktarlag 0/63 10.400 m3
→ Burðarlag 0/22 8.200 m3
→ Tvöföld klæðing 47.900 m2
→ Frágangur fláa 62.900 m2
Hella
Þjóðvegur (1)
Rangárvalla-
vegur (2
64)
Þi
ng
sk
ál
a-
ve
gu
r (
26
8)
Bj
al
la
ve
gu
r
(2
72
)
Húsagarðsvegur
(2771)
Árbæ
jarvegur
(271)
Framkvæmdasvæði
Ytri-
Rangá
Heiðarhraun
Snasahraun
Heiðarhraun
↓
Kort af framkvæmdasvæðinu.